Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 45
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
græn tónleikaröð í háskólabíói
Hljómsveitarstjóri ::: Ernst Kovacic
Einsöngvari ::: Auður Gunnarsdóttir
FIMMTUDAGINN 3. JANÚAR KL. 19.30 NOKKUR SÆTI LAUS
Það er hefð hjá mörgum að byrja árið með hátíðar-
brag á Vínartónleikum Sinfóníunnar. Þó er vissara
að hafa hraðar hendur ef fólk vill tryggja sér miða
á þessa sívinsælu tónleika, því þegar nær dregur
tónleikadagsetningum verða þeir ófáanlegir.
tónleikar utan raða í háskólabíói
FÖSTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUGARDAGINN 5. JANÚAR KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUGARDAGINN 5. JANÚAR KL. 21.00 LAUS SÆTI
Vínartónleikar
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
til sölu land á miðju höfuðborgarsvæðinu,
4.700 fm. með einu húsi.
Landið er vel gróið, sólríkt og skjólgott, vel
staðsett gagnvart samgöngum,
nóg pláss fyrir stórt hús,
sundlaug og tennisvöll ásamt ýmsu öðru.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer
á auglýsingadeild Morgunblaðsins
fyrir 31. desember
merkt: ,,Höll - 20960"
Höll í Borg
KRISTÍN Gunnlaugsdóttir nefn-
ir nýja og metnaðarfulla sýningu
sína í Gallerí Turpentine Fjalla-
landið, hér leitast hún við að
birta landslag hugans eins og
hún segir sjálf. Málverk hennar
eru í stærri kantinum og aug-
ljóslega hefur Kristín lagt mikla
vinnu í sýninguna. Sú vinna skil-
ar sér og málverkin skapa dul-
arfullan og áleitinn heim. Myrk-
ur og einkennilegir litir eru sums
staðar ríkjandi en annars staðar
birta og von. Fjöllin eru mjúk og
oft líkast því að voðir séu dregn-
ar yfir huldar verur sem standa
yfir manni. Þau minna á fjöll í
bakgrunni á málverkum miðalda,
– málverkum sem voru máluð áð-
ur en hugtakið landslag varð til.
Þessi mjúku form kalla líka fram
landslagsmyndir Salvador Dali,
það er súrrealískur blær yfir
þessum draumkennda skugga-
heimi.
Kristín sýnir nú líka teikn-
ingar sem er nýlunda, en þær
bæta sama og engu við mál-
verkin og standa þeim að baki.
Þó má líta á þær sem innsýn í
vinnulag listakonunnar, sé svo að
slíkar teikningar liggi málverk-
unum til grundvallar. Listrænt
séð væri það Kristínu tæpast til
framdráttar að ætla þær ein-
ungis sem söluvöru til handa
þeim sem ekki reiða fram tvær
eða jafnvel fimm milljónir fyrir
málverk, en slík verðlagning er
að mínu mati dæmi um brenglun
í verðlagi á íslenskum listmark-
aði.
Á sýningunni hefur sú veröld
sem Kristín hefur birt í verkum
sínum undanfarin ár öðlast
áþreifanlegri tilvist en áður. Það
er hvers og eins að tengja eigið
sálarlíf þessum innra heimi sem
hér birtist, en listakonan sýnir
hér að hún öðlast sífellt meira
vald yfir viðfangsefni sínu.
Dalir dulvitundar
MYNDLIST
Gallerí Turpentine
Til 15. des. Opið þri. til fös. frá kl.
12–18 en 12–17 laug. Aðgangur
ókeypis.
Fjallaland, Kristín Gunnlaugsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Dularfull Verkið „Leiðin“ eftir Kristínu
Gunnlaugsdóttur í Gallery Turpentine. Ragna Sigurðardóttir