Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 48
48 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HVERT sem þú ferð er regn ein-
faldlega regn. Það land er ekki til
þar sem íbúar kalla vatn er fellur
úr himninum ekki regn. Regn er
viðurkennt hugtak á alþjóðavísu.
Þó er regnið á Íslandi ekki endi-
lega það sama og annars staðar í
heiminum. Japanskt vorregn er til
dæmis mjög mjúkt og hæglátt en
regn í hitabeltislöndum getur verið
óvægið. Regn er það sama en fólk
upplifir það á mismunandi hátt. Í
Japan er sagt að þeir sem aldrei
hafa ferðast út fyrir eigið land verði
að ímynda sér hvernig regnið er í
öðrum löndum. Þessi skilningur á
margbreytileika er nauðsynlegur
fyrir mannveruna, að geta ímyndað
sér hvernig ólíkir einstaklingar
upplifa fyrirbæri svo sem regnið.
Ég vil í þessu samhengi tala um
hina ýmsu málshætti um regn frá
löndum heimsins.
Indónesía:
„Gyllt regn drýpur í öðru landi
meðan steinregn fellur í eigin landi,
en okkar land er betra.“
Inntakið í þessu máltæki er, að
einu gildir hvar þú býrð á erlendri
grund undir gullnu regni. Jafnvel
þótt regnið heima fyrir sé gert úr
steinum þá er alltaf best heima.
Japan:
„Regn fellur, jörðin þéttist.“
Þessi málsháttur er oft notaður í
Japan eftir að vandamál hafa verið
leyst eða eftir rifrildi við fjölskyldu
eða vini. Máltækið segir að eftir
regn þá harðni jörðin og verði gróð-
ursælli, þ.e. að eftir rifrildi náinna
einstaklinga styrkist samband við-
komandi. Einungis eft-
ir svona rifrildi geta
sambönd sannra vina
eða hjóna styrkst eins
og blómstrandi jörð.
Ísland:
„Það skiptast á skin
og skúrir.“
Lífið er þannig að
ekki er ávallt sólskin,
heldur er óhjá-
kvæmilegt að úrkoma
verði annað slagið.
Sama gildir um að vel-
gengni er ekki sleitu-
laus og nauðsyn er að vera viðbúinn
erfiðari tímum.
Malasía:
„Ekkert land er án blessandi
regns.“
Inntak þessa málsháttar er að
allir geri mistök og ættu að gera.
Samkvæmt Kóraninum eru mistök
fyrirgefin – Guð mun fyrirgefa.
Bandaríkin:
„Fínt veður eftir regn.“
Þessi málsháttur endurspeglar
ameríska bjartsýni. Málshátturinn
býður lesandanum annan möguleika
þrátt fyrir að hann hafi gert mistök
oftar en einu sinni. Fyrirheit eru
um ný tækifæri og nýjar ögranir.
Frakkland:
„Maðurinn er eins og hann er,
regnið er eins og það er.“
Frakkar viðurkenna frelsi annars
fólks þegar farið er fram á það.
Manneskjur eiga sínar góðu og
slæmar hliðar. Jafnvel þótt maður
vildi umfram allt laga slæmar hliðar
einhvers er það ekki hægt. Á sama
hátt er ekki hægt að
stöðva regnið. Það er
dýrmætur eiginleiki að
geta lokað öðru aug-
anu fyrir slæmum hlið-
um fólks til að halda í
hið góða.
Ítalía:
„Regnið mun falla
þar sem Guði þókn-
ast.“
Ítalir hafa þá til-
hneigingu til að láta
Guð um hlutina. Það
sem þeim er um megn
er og verður í höndum Guðs. Það er
ekki endilega regn þann dag er
fólki þóknast, aðeins Guð getur
ákveðið hvenær regnið fellur.
Grikkland:
„Eftir þrumur fellur regn.“
Eitthvað á þá leið er máltæki
sem haft er eftir gríska heimspek-
ingnum Sókrates. Kvöld nokkurt
þegar Sókrates var að ræða um
hugmyndir sínar við vini sína, veitt-
ist kona hans að honum, skammaði
hann gífurlega og rak hann út úr
húsi. Þegar komið var út héldu þeir
vinirnir spjalli sínu áfram fram á
nótt. Kona hans reiddist mjög og
skvetti bala af vatni á Sókrates sem
‚Ame‘ / „Regn“
Motokatsu Watanabe skrifar
um mismunandi túlkun þjóða á
málsháttum um regn
Motokatsu Watanabe
» Þessi skilningur ámargbreytileika er
nauðsynlegur fyrir
mannveruna …
Fréttir í tölvupósti
Guðrún Hulda Ólafsdóttir Hdl.
Löggiltur fasteignasali
861 1032
gudrunhulda@remax.is
Skeifan
Allt a
ð 142
%
ávöx
tun
ef st
aðfe
sting
argja
ld
er gr
eitt f
yrir
15. d
es nk
.
EINSTAKT
TÆKIFÆRI
HAGKVÆM GREIÐSLUKJÖR
HAGSTÆTT SKATTAUMHVERFI
ÚTLEIGA ÍBÚÐA TRYGGÐ VIð AFHENDINGU
GJALDMIÐILLINN ER USD ($)
BANKATRYGGINGAR FYRIR ÞÁ SEM ÞAÐ KJÓSA
HAGKVÆMT GENGI BANKARÍKJADOLLARS
HÁMARKSÁVÖXTUN FYRIR ÞÁ SEM TAKA FRÁ ÍBÚÐ FYRIR 15. DES NK.
HITABELTISLOFTSLAG – MEÐALHITI 27°C
30 MÍN Á STRÖND MEÐ HVÍTUM SANDI OG HEITUM SJÓ
FRÁBÆR AFÞREYING Í HÖFUÐBORGINNI OG NÁGRENNI
GÓÐAR VERSLANIR OG HAGSTÆTT VERÐLAG
ANNAÐ STÆRSTA FRÍVERSLUNARSVÆÐI Í HEIMI Í PANAMA
MARGIR BESTU GOLFVELLIR Í LATNESKU AMERÍKU VIÐ BORGINA
KONUR ELDRI EN 55 ÁRA OG MENN ELDRI EN 60 ÁRA NJÓTA SÉRSTAKRA AFSLÁTTARKJARA
Grupo Mall kynna einstakt tækifæri fyrir íslendinga til að fjárfesta
í íbúðum í einni stærstu íbúðabyggingu í heimi, „LOS FAROS DE
PANAMA“
Um er að ræða 3 íbúðaturna með um 1750 íbúðum, fimm stjörnu
hótel, spilavíti, 30.000 fm. verslunarmiðstöð, sundlaugar og
líkamsræktarstöð.
LOS FAROS DE PANAMA
www.losfarosdepanama.com
Hafið samband til að bóka
einka kynningu 8611032
4ra-5 herbergja glæsileg íbúð á
3. hæð ásamt stæði í bílageymslu.
Íbúðin skiptist í rúmgott hol, stofu,
eldhús, baðherbergi og 3 svefnher-
bergi. Íbúðin er sjálf 113 fm með
geymslunni sem er 7,4 fm en henni
fylgir einnig 24,5 fm sérherbergi í
kjallara. Mjög góð lóð fyrir framan
húsið sem er með leiktækjum o.fl.
Blokkin hefur verið klædd með steni.
Laus fljótlega. Verð 27,5 millj.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Engjasel - útsýnisíbúð
M
bl
9
47
16
7