Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 53
NOKKUÐ hefur verið fjallað um
þróunarhjálp síðustu daga, innan
bloggheima og utan. Þar hafa eink-
um þrjár greinar vakið athygli mína;
Sólrún María Ólafsdóttir ritar um
þróunarhjálp og Malaví í Morg-
unblaðið 29. nóvember, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson um gagns-
lausa þróunaraðstoð í Fréttablaðið
30. nóvember og loks bloggar Ívar
Pálsson um þróunarlausa aðstoð 1.
desember.
Það er mikill munur á þessum
þremur greinum, Sólrúnar Maríu
annars vegar og hinum tveimur hins
vegar. Þær eiga það hins vegar allar
sameiginlegt að í þeim er vitnað til
orða þeirra landlæknishjóna Sig-
urðar og Sigríðar í viðtölum eftir að
þau komu heim eftir ársdvöl í
Malaví.
Sólrún María hefur það framyfir
þá félaga Hannes Hólmstein og Ívar
að hún þekkir málefnið sem hún
skrifar um, enda starfar hún hjá
Þróunarhjálp Sameinuðu þjóðanna.
Hún veit hvað hugtakið þróun-
araðstoð felur í sér. Það virðast þeir
Hannes og Ívar hins vegar ekki
gera; a.m.k. fer það svo, að þegar
þeir leita dæma til að sýna fram á til-
gangsleysi þróunaraðstoðar þá
grípa þeir til dæma á borð við mat-
argjafir og peningagjafir til spilltra
valdhafa í þróunarríkjunum. Slíkar
gjafir eru ekki þróunaraðstoð, ekki
heldur fatagjafir sem oft hafa átt sér
stað eftir velheppnaðar safnanir hér
á landi og annars staðar. Þróun-
araðstoð er aðstoð við uppbyggingu
og getur tekið mörg ár í sumum til-
vikum; fata- og matargjafir eru
neyðarhjálp sem ætlað er að bæta úr
brýnni, tímabundinni neyð. Ég vona
að þeir Hannes Hólmsteinn og Ívar
telji það ekki hugmyndafræðilega
rangt að koma í veg fyrir að fólk deyi
úr hungri eða krókni úr kulda.
Það verður að segjast eins og er
að þeir sem til þekktu furðuðu sig
nokkuð á þeim ummælum sem höfð
voru eftir landlæknishjónunum við
komuna heim frá Malaví. Ekki
vegna þess að þau væru í eðli sínu
röng, heldur vegna þess að fram-
setningin var slík að halda hefði
mátt að stofnunin sem þau hjónin
unnu hjá þetta ár í Malaví, Þróun-
arsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ),
iðkaði þau vinnubrögð sem þau voru
að gagnrýna, m.a. gagnslausar pen-
ingagjafir. Sem er alrangt.
Íslendingar hafa markað ákveðna
stefnu í þróunaraðstoð sinni. Stefn-
an sú byggist á að gera heimamenn
færa um að hjálpa sér sjálfir. Þessi
stefna kristallast í starfi ÞSSÍ, sem
tekið hefur þátt í fjölda verkefna í
Afríkuríkjunum Úganda, Malaví,
Mósambík og Namibíu, auk til-
tölulega nýrra verkefna í Níkaragúa
og á Sri Lanka. Þessi verkefni eru á
sviði menntamála (fullorðinsfræðsla,
leikskólar, barnaskólar, heyrnleys-
ingjaskólar) og annarra félagslegra
málefna.
Ágætis dæmi um eðli starfsins eru
t.d. sjómannaskólinn í Walvis Bay í
Namibíu og Rannsóknarstofa fisk-
iðnaðarins í Mapútó, Mósambík. Á
báðum stöðum var starfsfólk mennt-
að og þjálfað, kennarar og stjórn-
endur á öllum sviðum í Walvis Bay
og starfsmenn, rannsóknarfólk og
stjórnendur víða að af landinu í Ma-
pútó. Reksturinn er kominn í það
horf að Namibíumenn hafa tekið al-
farið við sjómannaskólanum í Walvis
Bay, sem er viðurkenndur fullkomn-
asti sjómannaskóli í Afríku og þótt
víðar væri leitað. Í Rannsóknarstofu
fiskiðnaðarins í Mosambík hefur
verið byggt upp öflugt vinnslu- og
eftirlitskerfi með gæðum sjávarafla,
þar sem lokamark-
miðið er að ná þeim
gæðastaðli sem þarf
til að komast inn á
markað Evrópusam-
bandsins, ekki síst
með risarækjur. Á
báðum þessum stöð-
um var lokamarkið
að gera íslenska leið-
beinendur þarflausa,
þannig að heima-
menn geti tekið við
og rekið sínar eigin
sjálfbæru stofnanir,
með öruggum tekju-
stofnum. Í Walvis Bay er því tak-
marki náð og enginn Íslendingur
eftir við skólann; Mósambík er farið
að flytja fisk á Evrópumarkað, bein-
línis vegna þess gæðastarfs sem
rannsóknarstofan hefur
verið að skipuleggja vítt
um landið með aðstoð
ÞSSÍ.
Þetta er þróunarhjálp,
þróunarsamvinna sem á
sér stað í fullkominni
samvinnu við sveit-
arstjórnir viðkomandi
svæðis og það ráðuneyti
sem viðkomandi starf-
semi heyrir undir, á for-
sendum heimamanna. Að
telja slíka aðstoða gagns-
lausa (HHG) eða þróun-
arlausa (ÍP) felur í sér
fullkomna vanþekkingu á málefninu.
Gagnsemi þróunaraðstoðar
Haukur Már Haraldsson skrifar
um þróunaraðstoð » Ágætis dæmi um eðli starfsins eru
t.d. sjómannaskólinn
í Walvis Bay í Namibíu
og Rannsóknarstofa
fiskiðnaðarins í Mapútó,
Mósambík
Haukur Már
Haraldsson
Höfundur er framhaldsskólakennari
og á sæti í stjórn Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands.
Framtíðarsjóður Byrs
Gefðu bjarta framtíð!
Framtíðarsjóður Byrs er verðtryggður sparireikningur, bundinn
til 18 ára aldurs og ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga.
Engin lágmarksupphæð er á innborgunum og kjör haldast óbreytt þótt
innstæða sé ekki tekin út við 18 ára aldur.
Á heimasíðu okkar www.byr.is getur þú reiknað út hve mikið
þú getur sparað með Framtíðarsjóðnum.
Kannski verður sjóðurinn lykillinn að fyrstu íbúðinni, bílnum,
draumaferðinni eða skólagjöldum.
Byr sparisjóður Sími 575 4000 www.byr.is
Með hverju 5000 kr. gjafabréfi
færðu 2000 kr. viðbótarframlag frá Byr.
Gjafabréfið kemur í fallegri öskju.Fréttir
í tölvu-
pósti