Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 55
Við bíðum ekki lengur!
Hanza afnemur stimpilgjöldin af húsnæðisláninu þínu við íbúðarkaup á
Arnarneshæð í desember. Við endurgreiðum gjöld af allt að 20 millj. kr.
láni á íbúð og 30 millj. kr. láni fyrir raðhús.
Þaulvant starfsfólk Húsakaupa liðsinnir þér af alúð og vandvirkni enda
býr Húsakaup að 20 ára reynslu af farsælli miðlun fasteigna. Þeir sem þurfa
að selja eða kaupa fasteignir geta treyst því að þjónustan er fagleg, skjót og
skilvirk. Við seljum eignina þína.
Sími 530 1500 | Suðurlandsbraut 52 | Guðrún Árnadóttir löggiltur fasteignasali | www.arnarnes.is
www.atvinnueignir.is
534 1020
Veit ingastaður við Laugarveg, 101 Rvk
Til leigu. Húsnæði við Laugarveg innréttað sem veitingastaður. Til afhendingar strax. Uppl.
gefa Helgi 663-2411 og Ólafur 824-6703
Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA,
löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali
Ólafur Jóhannsson, rekstarfræðingur,
löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali
Hótel í miðbæ Reykjavíkur, 101 Rvk
Til leigu eða sölu. Húsnæði í byggingu sem verður innréttað sem 42 herbergja fjögurra
stjörnu hótel. Uppl. gefa Helgi 663-2411 og Ólafur 824-6703
Byggingarrétt ir í miðbæ Reykjavíkur, 101 Rvk
Til sölu. Byggingaréttir, leigutekjur. Uppl. gefa Helgi 663-2411 og Ólafur 824-6703
ÞAÐ vill brenna við þegar Vetur
konungur heldur innreið sína að
Íslendingar séu svolítið óviðbúnir.
Þá reynir gjarnan á aksturshæfi-
leikana en því miður duga þeir
ekki alltaf til.
Vegagerðin kannar ástand vega
og kemur þeim upplýsingum til al-
mennings, þ.e.a.s. hvort greiðfært
sé, hálkublettir eða flughálka svo
dæmi séu tekin. Þetta þekkja
flestir en hins vegar vita ef til vill
færri að þjónustustig Vegagerð-
arinnar eru mörg og mismunandi.
Það fer eftir eðli vega en mest eft-
ir umferðinni hvaða þjónusta er
veitt.
Suma vegi stefnir Vegagerðin að
aðhálkuverja alltaf, annars staðar
er ef til vill einungis mokað tvisvar
í viku, eða það er brugðist við flug-
hálku en ekki hálku, samkvæmt
ákveðnum skilgreiningum.
Það getur verið gott fyrir veg-
farendur að kynna sér hver þjón-
ustan er á hverjum stað áður en
ferð hefst. Á vef Vegagerðarinnar,
www.vegagerdin.is má finna þetta
allt saman auk upplýsinga um veð-
ur og færð. Ef farið er í flipann
„Umferð og færð“ getur notandinn
skoðað hvernig „snjómokstri“ er
háttað og hver önnur þjónusta er á
veturna. Með því að kynna sér
„vinnureglur“ má sjá hvernig mis-
munandi kaflar vegakerfisins eru
þjónustaðir, flokkar segja til um
hvort vegir séu eingöngu hálkuv-
arðir vegna flughálku eða bæði í
hálku og flughálku.
Vegagerðin hefur sett upp þétt
net veðurmæla um allt land. Þá er
einnig að finna á vef Vegagerð-
arinnar, líka undir flipanum um
„Umferð og færð“: „Veð-
urstöðvar“.
En ef til vill er samt þægileg-
asta lausnin fyrir vegfaranda sem
vill kynna sér ástandið á þeirri leið
sem hann er að fara að opna vef-
myndavél sem sýnir
ástandið á veginum og
veðrið, með reglulegu
millibili. Myndavélar
hafa verið settar upp á
ríflega 20 stöðum, oft-
ast á fjallvegum og má
nefna Hellisheiðina
hér fyrir sunnan og
Holtavörðuheiði. Þrjár
myndavélar eru á
hverjum stað sem
sýna veginn í báðar
áttir og einnig beint
niður á veginn. Með
því að bregða sér á vefinn geta
menn í sviphendingu séð út í hvað
menn eru að leggja.
Að sjálfsögðu er
einnig hægt að
hringja í upplýs-
ingasíma Vegagerð-
arinnar 1777 frá 6.30
til 22.00 á veturna eða
í símsvarann 1779.
Aðalatriði er þó að
keyra eftir aðstæðum
hverju sinni, kynna
sér færð og veður og
vera á bíl útbúnum
fyrir það sem að
höndum getur borið.
Flughálka eða hálkublettir
G. Pétur Matthíasson stiklar á
mismunandi þjónustu Vega-
gerðarinnar
»En ef til vill er samtþægilegasta lausnin
fyrir vegfaranda, sem
vill kynna sér ástandið á
þeirri leið sem hann er
að fara, að opna vef-
myndavél
G.Pétur Matthíasson
Höfundur er upplýsingafulltrúi Vega-
gerðarinnar.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Fréttir
í tölvupósti
smáauglýsingar
mbl.is
Fréttir í
tölvupósti