Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 66
66 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞETTA VÆRI EKKI
SLÆM VINNA
ÞAÐ ERU ÞVÍ
MIÐUR ENGAR
LAUSAR STÖÐUR
ÉG SKIL
EKKI AF
HVERJU ÞÚ
ERT REIÐUR
ÚT Í MIG
ÞEGAR ÉG VERÐ
NÍUTÍU OG FIMM ÁRA
VERÐUR HÚN NÍRÆÐ!
ÉG HEF ENGAN ÁHUGA Á
SYSTUR ÞINNI! ÉG ER FIMM
ÁRUM ELDRI EN HÚN!
HEILUM FIMM ÁRUM!
FIMM ÁR ERU KANNSKI EKKI
SVO MIKIÐ NÚNA EN ÞEGAR
VIÐ VERÐUM ELDRI...
ÉG ER NÆST-
UM BÚIN AÐ
SÓPA UPP ÖLL
GLERBROTIN
ÉG SKAL
FINNA EITT-
HVAÐ TIL AÐ
HYLJA GATIÐ
HELDURÐU AÐ
ÞAÐ SÉ ÖRUGGT
AÐ VERA HÉRNA
Í NÓTT? HVAÐ
EF ÞJÓFARNIR
KOMA AFTUR?
LÖGGAN
ÆTLAR
AÐ KEYRA
FRAMHJÁ
OG VIÐ
KVEIKJUM
LJÓSIN
ÞAÐ ER HRÆÐILEGT AÐ VITA
AF ÞVÍ AÐ ÞESSIR ÞRJÓTAR
HAFI VERIÐ HÉR
ÞETTA
HLÝTUR AÐ
VERA MJÖG
HRÆÐILEGT
FYRIR BARN
EINS OG
KALVIN
ÉG GET EKKI
BEÐIÐ EFTIR
AÐ SEGJA
ÖLLUM Í
SKÓLANUM
FRÁ INN-
BROTINU!
MUNDU AÐ
SEGJA ÞEIM
FRÁ ÞVÍ
HVERNIG MÉR
TÓKST AÐ
HRÆÐA ÞÁ Í
BURTU
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS?
AF HVERJU ER ÉG HÉR?
ERTU HÉRNA ÞVÍ BARÞJÓNNINN
LEYFIR ÞÉR AÐ SETJA DRYKKINA
ÞÍNA Á REIKNING?
MUNDU AÐ
ÞURRKA AF ÞÉR
ÁÐUR EN ÞÚ
KEMUR INN OG
EKKI FARA ÚR
HÁRUM Í
SÓFANUM
ER MAMMA
BÚIN AÐ
MISSA
MÁLIÐ?
ÉG ÆTLA AÐ ATHUGA HVORT
ÞAÐ SÉU EINHVERJAR
MYNDIR AF KALLA Á
VEFSÍÐUNNI ÞEIRRA
ÞARNA ER MYND
AF HONUM Í
MATSALNUM
HANN ER EKKI
BROSANDI, LALLI! HANN
ER LEIÐUR!
LITLA STRÁKNUM
MÍNUM LÍÐUR ILLA!
HVERNIG VEISTU
HANN ER AÐ DREKKA
ÚR GLASI Á MYNDINNI
HETJAN
OKKAR
LÆTUR
SIG
HVERFA...
FRÁBÆRT! ÉG LAUMAST INN TIL AÐ
LEITA AÐ VÍSBENDINGUM...
OG ÞAÐ ER SKOTIÐ Á MIG
EN ÉG GET
EKKI HÆTT...
ÉG VERÐ AÐ KOMAST
AÐ ÞVÍ HVER REYNDI
AÐ DREPA M.J.
dagbók|velvakandi
Frelsi Sigurðar Kára
ÞINGMAÐURINN hefur þanið sig
mikið út með hugtakinu frelsi og tel-
ur það allra meina bót þegar frelsið
hentar málstað hans.
Sigurður Kári vill hafa frelsi til
þeirra aðgerða er henta honum og
hans stefnumálum og eru öll lög sem
hefta hans hagsmuni í lífinu ólög.
Hefur hann lagst gegn því að yf-
irvöldum sé heimilt að birta upplýs-
ingar er sýna misræmið í tekjuskipt-
ingunni í þjóðfélaginu. Hann telur að
frelsið felist í því að aðrir viti ekki af
misréttinu sem hann sjálfur beitir
aðra þegna þjóðfélagsins með sínum
pólitísku aðgerðum.
Þessi ungi maður virðist ekki
skilja frekar en aðrir ungliðar Sjálf-
stæðisflokksins að frelsi þeirra nær
ekki lengra en nef þeirra nær. Þar
fyrir utan er komið á svæði þar sem
aðrir þegnar hafa jafnmikinn rétt og
hann sjálfur.
Maður þessi berst fyrir frjálsræði
í gróðabraski fyrir sig og sína fylgj-
endur en ef aðrir þegnar þessa lands
hafa reynt að laga bágborin kjör sín
hefur þessi engill Hvítliðahreyfing-
arinnar snúist af öllu afli gegn þeirri
ósvífni annars flokks borgara þessa
lands að krefjast þess að lífskjör
þeirra batni.
Annars flokks borgarar eru að
hans mati þeir sem ekki aðhyllast
skoðanir hans á því hvað réttlæti er.
Í hans augum er ekkert réttlæti
nema það sem þjónar hagsmunum
hans og þeim flokki er hann til-
heyrir. Það þjónar frelsi Sigurðar
Kára að hindra kjarabaráttu þeirra
sem minna mega sín í þjóðfélaginu
með því að banna verkföll þeirra
eins og flokkur sá er Sigurður Kári
tilheyrir hefur gert á undanförnum
áratugum.
Sumar stéttir þessa þjóðfélags
hafa ekki fengið frið í áratugi til að
semja um kaup og kjör fyrir yf-
irgangi frelsisunnandi íhaldsmanna
(frjálshyggjumanna) sem hafa bann-
að með lögum allar aðgerðir af
þeirra hálfu. Sigurður Kári og hans
flokksbræður hafa á sama tíma og
þeir banna öðrum að semja um sín
kjör, í krafti aðstöðu sinnar í þingsal
bætt kjör sín langt umfram það sem
hægt er að réttlæta að teknu tilliti til
breytinga á kjörum hjá öðrum í
þjóðfélaginu. Þetta hefur Sigurður
Kári gert ásamt félögum sínum í
nafni þess frelsis er hann telur sig
hafa.
Frelsi Sigurðar Kára er sam-
kvæmt hans mati fólgið í því að þar
sem stjórnarskráin ekki bannar
þingmönnum að bæta lífskjör sín á
kostnað annarra þegna þjóðfélags-
ins þá er það frelsi. Allt sem skerðir
vilja og ætlanir Sigurðar Kára og
hans meðreiðarsveina er ófrelsi.
Af hverju berst Sigurður Kári
ekki gegn því ófrelsi sem felst í
banni á sölu og dreifingu á því sem
kallað er ólögleg eiturlyf en berst af
miklum þunga fyrir frekari dreif-
ingu á þeim eiturlyfjum sem ráða-
menn þjóðarinnar hafa dálæti á?
Hefur þingmaðurinn gert sér
grein fyrir að það er skerðing á
frelsi fjölda þegna þessa lands, það
ónæði og þau óþægindi sem notkun
annarra á löglegum eiturlyfjum
veldur? Hvar er frelsi þess fólks?
Kristján Guðmundsson,
fv. skipstjóri, Rauðagerði 39.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
YNGRI kynslóðin tekur snjónum alltaf fagnandi. Hvert tækifæri sem gefst
er nýtt til að leika sér í snjónum og hér má sjá hressa krakka renna sér nið-
ur brekku fyrir ofan Lindaskóla í Kópavogi.
Morgunblaðið/Golli
Ekkert slegið af
FRÉTTIR
STJÓRN Blaðamannafélags Íslands
hefur ályktað eftirfarandi vegna
málefna tímaritsins Ísafoldar og
sent fjölmiðlum:
,,Blaðamannafélag Íslands for-
dæmir allar tilraunir til ritskoðunar
af hálfu verslana og eigenda þeirra.
Ritstjóri tímaritsins Ísafoldar held-
ur því fram að ákvörðun um að hætta
að selja blaðið í verslunum Kaupáss
hafi verið tekin í kjölfar umfjöllunar
blaðsins um bæjarstjóra Kópavogs.
Ákvörðunin hafi auk þess brotið í
bága við gildandi dreifingarsamning
milli Kaupáss og forsvarsmanna
Birtings sem gefur út tímaritið, en
honum hafi mátt segja upp með
þriggja mánaða fyrirvara. Talsmenn
útgáfunnar telja ljóst að draga þurfi
saman seglin í kjölfarið.
Blaðamannafélagið skrifaði Jóni
Helga Guðmundssyni, forstjóra
Kaupáss, fyrir mánuði og óskaði eft-
ir skýringum á því að tímaritið Ísa-
fold hefði verið tekið úr verslunum
fyrirtækisins. Forstjórinn hefur ekki
séð ástæðu til að svara. Þá vildi fé-
lagið vita hvort hann gæti tekið und-
ir það grundvallarsjónarmið, að það
væri í hæsta máta óheppilegt að
verslanir tækju blöð og tímarit úr
sölu, þvert á gerða samninga, ef eig-
endum þeirra líkaði ekki efni þeirra.
Því var einnig látið ósvarað.
Ef það reynist rétt að áhrifamenn
í viðskiptalífinu ætli að stjórna lestri
blaða og tímarita með því að fjar-
lægja úr hillum allt lesefni með um-
fjöllun sem ekki fellur að þeirra
smekk og allt það efni sem kann að
innihalda aðrar skoðanir en þeirra
eigin, þá er það áhyggjuefni. Blaða-
mannafélag Íslands telur óþolandi
að áhrifamenn reyni í krafti valds
síns, auðæfa eða viðskiptahagsmuna
að hafa áhrif á skrif fjölmiðla. Mislíki
mönnum umfjöllun fjölmiðla eiga
þeir þess kost að leita til siðanefndar
Blaðamannafélags Íslands eða dóm-
stóla. Með aðgerðum sínum gagn-
vart tímaritinu Ísafold lítur út fyrir
að stórfyrirtæki á Íslandi sé að beita
áhrifum sínum á markaði til að kné-
setja tímarit og veigri sér ekki við að
brjóta gerða samninga til að ná
markmiði sínu.“
BÍ ályktar vegna
málefna Ísafoldar