Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 70
„Þið skuluð ekki hætta fyrr en þið finnið handa mér prins- essu …“ 79 » reykjavíkreykjavík Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞEIR eru ansi ólíkir í skaphöfn og að upplagi, meistararnir tveir sem ég hitti á heimili Gunnars á föstu- daginn. Gunnar er stóískur að upp- lagi; rólyndismaður sem veit að ræðan er silfur en þögnin gull. Það veður hins vegar á Ragnari Bjarna- syni, hann segist eiga fjögur djobb eftir í dag auk einhvers meira til og áður en ég og Gunnar komum upp orði er hann búinn að árita diskinn minn, spila jólalag á píanó- ið og segja okkur sprenghlægilega sögu af Ómari Ragnarssyni. Ég verð síðan hálfhissa þegar hann rukkar Gunna um kaffi. Ég hefði haldið að hann væri búinn með a.m.k. sex, sjö bolla, slík eru lætin. Allt nýtt „Málið er að ég var alltaf að biðja Gunna um rokklag. „Komdu nú með rokklag handa mér,“ sagði ég við hann,“ segir Ragnar en skiptir síðan skyndilega um um- ræðuefni. „Veistu hvernig ég veit þegar Gunni er ánægður í stúd- íóinu. Þá hallar hann hausnum svona til vinstri og setur svona í bringuna,“ segir hann, leikur þetta og hlær. Ég og Gunnar getum ekki annað en hlegið með. Raggi er í banastuði. „Ég bjó svo sjálfur til svona vit- leysingalag um jólastressið og fékk frábæran texta frá Kristjáni Hreinssyni. Ég ætlaði að koma aft- an að Gunna af því að hann var ekki búinn með rokklagið (Gunni hlær). Svo ætlaði ég að láta henda laginu út en hann tók það ekki í mál!“ Ragnar segir tildrög verkefnisins liggja í því að hann og Gunnar hafi farið að velta fyrir sér jólaplötu og snemma hafi sú stefna verið tekin að gera alíslenska jólaplötu með nýjum lögum. „Það var mjög góð hugmynd, það er endalaust verið að hjakka á þessum gömlu. Svo hallaði Gunni bara hausnum til vinstri og lögin hrundu úr honum.“ Gunnar hlær við og segir að Raggi hafi komið til sín og sagt að það væri ekki búið að gera al- mennilega jólaplötu síðan 1980. Þeir félagar vísa þar í plötuna Í há- tíðarskapi sem Gunnar vann og Raggi söng á ásamt fleirum en þar er m.a. lagið „Er líða fer að jólum“ sem er mikið spilað um hver jól. Þessi plata seldist í bílförmum á sínum tíma. Hangikjötslykt Ragnar samdi tvö lög á plötunni, Þorgeir Ástvaldsson á eitt en Gunnar rest. Góðir gestir koma við sögu; hinn kornungi Árni Þór Lár- usson, Þú og ég, Hulda Björk Garðarsdóttir, Diddú, stúlkna- og kirkjukór auk þess sem nokkrir vel valdir jólaveinar gera sig heima- komna. „Maður samdi svona inn í söng- stílinn hans Ragga,“ segir Gunnar. „Og það er ekki auðvelt að syngja sum laganna. Ég passaði mig að- allega að hafa eitthvað gott upp í kjaftinn á honum!“ segir hann og þeir skellihlæja báðir. Gunnar rifjar upp að bransaorðið yfir það hvort jólaplata virki eða ekki sé hvort það sé hangikjötslykt af henni eða ekki. Blaðamaður spyr hver galdurinn sé og þeir félagar verða hljóðir í smástund. „Tjaa … það þarf að vera þægi- leg stemning. Hljómurinn þarf að vera hlýr,“ segir Gunni. „Einhvern veginn að reyna að dýrka upp þessa jólastemningu. Ég kemst nú ekki nær þessu.“ Ragnar og Gunnar eru að fara að flytja efnið á nokkrum jóla- tónleikum og verða einir slíkir í Keflavíkurkirkju í dag kl. 17.00. Aðrir verða þá haldnir í Skálholti hinn 15. desember og verður það í fyrsta skipti sem Ragnar syngur þar segir Gunnar. Við kveðjumst í stigaganginum og Gunnar biður Ragnar lengstra orða að fara nú varlega í vinnu næstu daga svo hann standi nú í lappirnar á væntanlegum tón- leikum þeirra félaganna. „Ja þú verður bara að halda mér uppi ef ég er kominn að fótum fram,“ segir Ragnar hlæjandi. „Þetta er bara svona … the show must go on!“ Morgunblaðið/Eggert Jólastemning „Þeir eru ansi ólíkir í skaphöfn og að upplagi,“ segir Arnar Eggert um þá Gunnar Þórðarson og Ragnar Bjarnason. JÓLALEGT, SKEMMTILEGT … OG ÍSLENSKT ALLA LEIÐ RAGGI BJARNA GEFUR ÚT JÓLA- PLÖTUNA GLEÐILEG JÓL MEÐ RAGGA BJARNA SEM INNIHELDUR NÝ LÖG EFTIR GUNNAR ÞÓRÐARSON Raggi »Ragnar Bjarnason fæddist 22.september 1934 í lítilli risíbúð í Lækjargötu 12a í Reykjavík. »Ragnar, eða Raggi Bjarna einsog hann er gjarnan þekktur, hóf ferilinn í sveit föður síns, hins vin- sæla hljómsveitarstjóra Bjarna Bö., en þá sem trommuleikari. »Hann hefur sungið inn á ótelj-andi plötur og þá í alls konar formi, 78 sn., 45 sn., LP og CD. Þekktasta lag hans er án efa „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig“. »Raggi söng lag Nirvana „SmellsLike Teen Spirit“ með Millj- ónamæringunum í kokkteilútgáfu árið 2001. Aðspurður þvertók hann fyrir að hafa heyrt lagið áður. »Alltaf er hann jafn iðinn við kol-ann, sísyngjandi og alltaf jafn- vinsæll en breiðskífa hans frá 2004 náði platínusölu. » Ragnar var valinn borg-arlistamaður Reykjavíkur í ár. Við afhendinguna fullyrti Ragnar að öll sín tónlist væri komin úr harm- ónikku föður síns, en Árni Scheving, fyrrverandi liðsmaður KK- sextettsins, lék undir á umrædda harmónikku við afhendinguna. » Raggi hefur alltaf þótt „kúl“;segja má að hann og Rúni Júl. séu ósnertanlegir í svalheitum. Raggi er reyndar svo kúl að hann rekur myspace-síðu. Þar kemur fram að hann er „unsigned“ og „in- die“. Gunni » Fæddist í Hólmavík 4. janúar1945. » Sambýliskona Gunnars er TobyS. Herman og eiga þau tvo syni, Karl og Zakarías. » Hann er einn af stofnendumhljómsveitarinnar Hljóma sem var stofnuð árið 1963 og varð fljót- lega vinsælasta hljómsveit Íslands. » Gunnar hefur stýrt upptökum ámiklum fjölda hljómplatna og ár- ið 1982 varð hann hljómsveitarstjóri á Broadway og hefur verið það nær óslitið síðan og sett upp fjölmargar sýningar þar ásamt Agli Eðvarðs- syni. » Hann fór að gefa klassískri tón-list aukinn gaum við lok níunda áratugarins. Hann er mikill aðdá- andi Mahlers og hefur samið nokkur klassísk tónverk. » Árið 1998 stofnaði Gunnarásamt Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni tríóið Guitar Islancio. Hafa þeir félagar sent frá sér fjóra geisladiska með útsetningum sínum á íslenskri þjóðlagatónlist. » Gunnar hefur samið yfir 500 lögá ferli sínum. Hann er hiklaust einn allra afkastamesti laga- og tón- verkasmiður landsins og hlaut hann fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu ís- lenskrar tónlistar árið 2001. Ragnar og Gunnar í tíma og rúmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.