Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 7
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
/
Haraldur Olafsson
Sandfoksveðrið
5. OKTÓBER 2004
Eitt af því sem hamlar athugun-
um og rannsóknum á vindi er
að hann er í flestum tilvikum
ósýnilegur. Það á þó ekki ávallt við,
því stundum flytur vindurinn laus
efni á borð við snjó eða jarðveg. Má
þá oft greina með berum augum
iður loftsins næst jörðu. A gervi-
tunglamyndum má einnig greina
leið loftsins sem og ýmis straum-
mynstur sem verða í jaðarlagi loft-
hjúpsins og nánast ógemingur getur
verið að mæla með hefðbundnum
hætti. Hér verður rýnt í forsíðu-
myndina sem tekin var frá gervi-
tungli kl. 13.40 þann 5. október 2004
og fjallað er um í grein Ólafs Amalds
og Sigmars Metúsalemssonar1 í
þessu hefti. Leitast verður við að
greina straummynstur í myndinni
og skýra þessi mynstur. Þá verður
rætt um ástand lofthjúpsins þennan
dag sem olli því að sandfok er eins
mikið, nær eins langt suður af
landinu og myndast eins vel og raun
ber vitni. Síðast en ekki síst verður
sýnt hvemig veðrinu var spáð með
nýju spákerfi sem sett var upp til
reynslu fyrr á árinu.
STRAUMMYNSTRIN
í MYNDINNI
Ljóst er af sandfokinu sem sjá má
meðfram suðurströndinni að býsna
hvasst er og af lengd slóðans suður
af landinu má ráða að mikið sandfok
hefur verið í a.m.k sex klukku-
stundir. Langmest fýkur af Mýrdals-
sandi, en sandfok er einnig mikið á
Skeiðarársandi og nokkurt á Land-
eyjasandi. Hins vegar fýkur lítið af
Skógasandi og af Meðallandssandi
og fjömm með Skaftá þar niður af.
Leikur því gmnur á að vindur sé þar
hægari. Tveir hvirflar koma skýrt
fram yfir sjónum suður af Vatnajökli
og gefa þeir til kynna að vindhraði
aukist mjög hratt er farið er frá vestri
til austurs á þeim slóðum. Sé litið á
landið í heild sinni má víða greina
skýjamynstur sem minnir helst á
þvottabretti. Hér eru á ferðinni
þyngdarbylgjur eða svokallaðar
fjallabylgjur. Myndast þær við það
að stöðugur loftmassi lendir á
fjöllum og tekur að sveiflast upp og
niður. I toppi bylgnanna er loftið
kaldast og þar þéttist rakinn og
myndar ský, en í bylgjudölunum er
hlýrra og skýjadroparnir hafa
gufað upp þegar þangað er komið.
Sé hitafall með hæð fasti er línulegt
samhengi milli bylgjulengdar og
vindhraða. Því lengra sem er milli
bylgjutoppa, því hvassara er. Af
myndinni að dæma virðist hægari
vindur yfir Vesturlandi en Austur-
landi. Er það í samræmi við loft-
þrýstisviðið á 1. mynd sem sýnir að
þrýstilínurnar þéttast eftir því sem
austar dregur yfir landinu. Suður
af Þórisjökli er ský sem varpar
löngum skugga í norður. Er hér há-
ský sem myndast hefur í fjalla-
bylgju sem nær upp í gegnum allt
veðrahvolfið. Fjallabylgjur geta
verið varasamar flugvélum og því
geta gervitunglamyndir af þessari
gerð veitt mikilvægar upplýsingar
fyrir flugumferð.
-
I
1D30
1020
1010
1000
300
9B0
970
9&0
1. mynd. Loftþrýstingur við sjávarmál kl. 12.00, 5. október 2004. Byggt á greiningu
CDC/NCEP.
Náttúrufræðingurinn 72 (3-4), bls. 93-95, 2004
93