Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags halli lagskiptingar og straumflög- unar heillegra bergstykkja í hólun- um mæld, en fljótlega kom í ljós að hin upprunalegu jarðlög voru öll úr lagi gengin. Strik og halli lag- skiptingar og straumflögunar reyndist mjög breytilegt og sýnast sum stykkin vera í upprunalegri stöðu en önnur upp á rönd. Þetta er varla hægt að túlka öðruvísi en svo að bergstykkin hafi færst úr stað og stöðvast þannig að tilviljun réð endanlegri stöðu. Það rennir óneitan- lega stoðum undir þá kenningu að hólarnir séu myndaðir við berg- hlaup. Hólarnir eða öllu heldur bergstykkin í þeim reyndust auk þess vera brotin og brömluð og sum kurluð. Þau hafa eflaust sprungið og brotnað í sjálfu berghlaupinu en einnig má gera ráð fyrir að langvarandi frostveðrun hafi kurlað bergstykkin enn frekar. Ef mið- og meginhluti Vatnsdals- hóla væri úr föstu bergi, eins og Agúst Guðmundsson11 hefur haldið fram, ætti að vera nokkur regla í stefnu lagskiptingar og straurn- flögunar bergstykkjanna. Ef á hinn bóginn jökull hefði haft veruleg áhrif á myndum og mótun Vatnsdalshóla, eins og Þorvaldur Thoroddsen' hélt fram og einnig Agúst Guðmunds- son,11 er næsta ólíklegt að nokkur hóll væri úr mulningi tveggja vel að- greindra bergásýnda. Þess væri fremur að vænta að hólamir væm úr samhræringi berggerðanna. Svo hefur ekki reynst vera (sbr. 8. mynd). Berggangar 7. Lágir upptypptir hólar í jaðri Vatnsdalshóla. í baksýn er ofanflatur rhýólíthóll sem tilheyrir miðhluta hólanna. - A small hill in the foreground with tnore continuous mass in the background. Ljósm./Photo: Hreggviður Norðdahl. 8. mynd. Hóll úr tveimur berggerðum, en tnörk þeirra eru skýrð tneð hvítri brotinni línu settt og á skýringarmynd neðst til hægri á tnyndinni. - A hill cotnprised of tzvo rock types, layering can be seen. Ljósm./Photo: Höskuldur Búi jónsson. Berggangar úr smá- og fínkomóttu basalti finnast vítt og breitt um hólana og var stefna og halli 45 þeirra mæld, jafnt um miðbik hól- anna sem og við jaðra þeirra (4. mynd). Oftast eru gangarnir nokkuð áberandi og sumir þeirra standa upp úr grannberginu, líklega vegna meira veðrunarþols (9. mynd). Sumir ganganna hafa kurlast og finnast einungis sem kantaðir basalt- stuðlar utan í einstökum hólurn og ofan á þeim. Stefna ganganna virðist vera nær algerlega tilviljunarkennd og engin ein stefna ríkjandi, eins og sést á áttarós á 4. mynd. Sama máli gegnir um halla ganganna. Hann er tilviljunarkenndur og em gangamir allt frá því að vera lóðréttir yfir í að vera nánast láréttir. Þessi stefnu- og halladreifing er allt önnur en í berg- gmnni Vatnsdals, en þar er ríkjandi gangastefna í höfuðatriðum frá norðri til suðurs, eins og sést á átta- rós á 3. mynd.12 Þetta rennir enn frekari stoðum undir það að Vatns- dalshólar séu ekki hluti af lítt- eða óröskuðum berggrunni svæðisins. Flest bendir til að þeir séu gerðir úr urðarmassa berghlaups. Hvað vantar í hólana? Eins og áður sagði var sérstaklega leitað að fínkorna setlögum og núnum steinum og hnullungum. Jafnframt var leitað að brotum úr berginnskotunum við bæina Hnjúk og Breiðabólstað, sunnan við hólana. Til að gera langa sögu stutta, þá finnst ekkert fíngert set og engir núnir hnullungar í Vatnsdalshólum, en tilvist slíkra efna hefði bent til þess að hólamir væm t.d. ættaðir frá jökli, mótaðir af straumvatni eða ölduróti sjávar, en greinileg urn- 135

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.