Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 53
Steingrímur Jónsson og
Héðinn Valdimarsson
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
ÁÐUR ÓÞEKKTUR
HAFSJRAUMUR FINNST
VIÐ ÍSLAND
í Grænlandssundi mætast hlýr og selturíkur Atlantssjór úr suðri, sem við
kennum gjaman við Golfstrauminn, og ískaldur og seltuminni pólsjór sem
ættaður er úr Norður-íshafinu. í sundinu eru því yfirleitt mjög skörp skil á
milli þessara sjógerða bæði hvað varðar seltu og hitastig. Yfir-
borðsstraumar í hafinu umhverfis ísland eru sýndir á 1. mynd. Þar sést að
megnið af Atlantssjónum (rauðar örvar) streymir yfir til Grænlands fyrir
sunnan sundið og síðan suður með grænlensku landgrunnshlíðinni. Lítil
grein heldur áfram norður með Vestfjörðum og síðan til austurs eftir
landgrunninu norðanlands. Pólsjórinn (bláar örvar) berst úr Norður-
íshafinu til Grænlandssunds með Austur-Grænlandsstraumi yfir
grænlenska landgrunninu og landgrunnshlíðinni. Lítill hluti hans streymir
inn í íslandshaf norðan Islands en megnið rennur óhindrað um
Grænlandssund. Undir pólsjónum liggur heldur hlýrri og saltari sjór sem
eru leifar af Atlantssjó sem streymt hefur meðfram Noregi og norður til
Svalbarða en sveigir þar yfir til Grænlands og aftur til suðurs undir
pólsjónum.
Ihöfunum norðan við hryggina
milli Grænlands og Skotlands
myndast að vetrarlagi þungur
sjór við kælingu á Atlantssjónum og
blöndun að litlu leyti við pólsjó.
Þessi sjór streymir síðan yfir hrygg-
ina milli Grænlands og Skotlands og
sekkur niður í djúpið í Atlantshafi og
streymir síðan áfram eftir botninum
langt suður um Atlantshaf. Um
helmingur af þessu flæði fer um
Grænlandssund. Sá sjór hefur á
ensku gengið undir nafninu „Den-
mark Strait Overflow Water" og
mætti nefna hann á íslensku yfirfalls-
sjó Grænlandssunds. Hann er mjög
mikilvægur fyrir endumýjun djúp-
sjávar í Atlantshafi. Einnig er talið að
flæði hans til suðvesturs um Græn-
landssund ásamt yfirfalli milli ís-
lands og Skotlands valdi því að inn í
norðurhöf dragist í yfirborðslögum
heihir og selturíkur Atlantssjór sem
gerir það að verkum að sjórinn við
norðanverða Evrópu, þar með talið
Island, er vemlega hlýrri en ella væri.
Lengi hefur verið deilt um
uppmna yfirfallssjávarins í Græn-
landssundi og var ályktað út frá
greiningu á sjógerðum í Islandshafi
að mestar líkur væm á því að hann
myndaðist í Islandshafi.2 Síðan var
gert ráð fyrir að sjórinn blandaðist
inn í Austur-Grænlandsstrauminn
og bærist áfram með honum út um
sundið suður í Grænlandshaf. Þessi
ályktun var eðlileg vegna þess að á
þeim tíma var ekki vitað um annan
straum sem rynni út um Grænlands-
sund en Austur-Grænlandsstraum-
inn. Þá var talið að straumur væri til
suðurs yfir landgrunnshlíðinni
Grænlandsmegin sundsins en til
norðurs yfir landgrunnshlíðinni
Islandsmegin. Innblöndun yfirfalls-
sjávar í Austur-Grænlandsstraum-
inn var síðar álitin of hæg til að geta
skýrt mikið flæði á honum út um
Grænlandssund. Þetta varð til þess
að hugmyndir um að yfirfallssjórinn
ætti uppruna sinn lengra í norðri,
þ.e. í Norður- Grænlandshafi3,4 eða
jafnvel í Norður-íshafi5-6 komu fram
Náttúrufræðingurinn 72 (3-4), bls. 139-143, 2004
139