Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 55
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
sem mælirinn sendir og þess endur-
kasts sem hann nemur frá ögnunum
(Doppler-hrif). Með straumsjá er
hægt að mæla straum á mismunandi
dýpi samtímis niður á allt að 700 m
dýpi frá rannsóknaskipi á siglingu.
Eitt af því sem gerir þessa mælingu
mögulega er sú nákvæmni sem
hægt er að ná í staðsetningu og
hreyfingum skipsins með GPS-
tækni. Hafrannsóknaskipið Arni
Friðriksson RE 200 (4. mynd) er búið
slíkum mæli (75 kHz) sem festur er
neðan á kjöl þess. Því er hægt að
fylgjast með straumum undir
skipinu á leið þess um höfin.
Straumur var mældur á Hom-
bankasniði sem liggur til norðurs á
21°35'V (2. mynd). Það er u.þ.b. 350
km norðaustur frá þröskuldinum í
Grænlandssundi. Siglt var yfir
sniðið frá 66°30'N til 67°40'N. Þetta
hefur nú verð gert þrívegis, þ.e. í
nóvember 2001,2002 og 2003. í lrvert
skipti var farið fjómm sinnum yfir
sniðið. Siglingin tók u.þ.b. 24
klukkustundir, sem em u.þ.b. tvær
sjávarfallasveiflur. Meðaltal var
síðan tekið af öllum fjómm yfir-
ferðunum til að minnka áhrif sjávar-
fallastrauma á útkomuna. Niður-
stöður mælinganna nálægt botni em
ekki marktækar þar sem truflana
gætir frá botninum. Samhliða fyrstu
og síðustu yfirferð vom hiti og selta
mæld á sniðinu með 10 sjómílna
millibili. Auk þess er stuðst við hita-
og seltumælingar frá Látrabjargs- og
Kögursniði sem gerðar voru í
nóvember hvert ár (2. mynd).
Niðurstöður
Skipta má straumnum í austur-
vestur- og norður-suðurþætti en
straumur í Hombankasniðinu er að
mestu í austur-vesturstefnu. Meðal-
töl austur-vesturþáttar straumsins
3. mynd. Straumsjá (ADCP-straum-
mælir). - An Acoustic Doppler Current
Profiler (ADCP).
4. mynd. Rannsóknaskipið Arni Friðriksson RE 200. - The Research vessel Arni
Friðriksson RE 200. Ljósm./Photo: Guðmundur Þórðarson.
5. mynd. Myndin sýnir slraumhraða í cm/s á Hornbankasniði. Gult táknar straum til austurs en dekkri svæði tákna straum til
vesturs og afmarka strauminn sem hér er fjallað um. Flutningur sjávar með straumum er mældur í einingunni Sverdrup (Sv) og er
1 Sv= 1.000.000 m3/s. Flutningur sjávar með straumnum var 2001 (0,6 Sv), 2002 (2,7 Sv) og 2003 (1,7 Sv). - The current speed in
cm/s on the Hornbanki section. Yellow indicates a current towards the east while darker areas indicate a current towards the west and
they delimit the current discussed here. The transport of ocean currents is measured in Sverdrups (Sv) and 1 Sv = 1,000,000 m3/s.
The transport with the current was in 2001 (0.6 Sv), 2002 (2.7 Sv) and 2003 (1.7 Sv).
141