Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
3. mynd. Vnrpútbreiðsla stormmáfs á íslandi sýnd eftir 10x10 km reitakerfi (skv.
gagnagrunni Náttúrufræðistofnunar íslands). - The breeding distribution ofCommon
Gulls in Iceland as presently knoum using 10x10 km squares (database at the lcelandic
lnstitute ofNatural History).
hólmamir fóm á kaf. Miðað við
talningar fyrir og eftir 1995 í þeim
níu hólmum sem ekki var unnt að
skoða álíta höfundar að þar hafi ekki
verið nema þrjú pör árið 19959 og er
það mat tekið með í niðurstöðunum.
Botn Svarfaðardals var hins vegar að
mestu undir vatni þegar talning fór
fram og hefur það eflaust haft áhrif á
niðurstöðu, eins og rætt er síðar.
Ekki var talið í Hrísey 1995 en þess í
stað var talning ársins 1996 notuð.
LandnAm stormmáfs,
EINKUM í EYJAFIRÐI
Stormmáfur er tiltölulega nýr
varpfugl á Islandi. Fyrsta hreiðrið
fannst árið 1955 í Korpúlfsstaða-
hólma við Reykjavík.1 Þó er talið að
stormmáfur hafi orpið hér á landi
um tveimur áratugum fyrr. í pistli
frá 193714 kveðst Kristján Geir-
mundsson hafa séð stormmáfshjón
með fleyga unga á leimnum við
Akureyri 2. september 1936. Árið
eftir sást á ný stormmáfspar sem var
að mata nýfleyga unga á sömu
slóðum.15 Hafa fuglamir sennilega
orpið einhvers staðar á svæðinu. Á
árunum upp úr 1950, einkum á
seinni hluta þess áratugar, sáust
stormmáfar nokkuð reglulega í
Eyjafirði, bæði á veturna og sumrin
(Kristján Geirmundsson). Árið 1958
fannst svo hreiður á Hvammsflæð-
um rétt sunnan Akureyrar og aftur á
sama stað árið eftir (Guðmundur K.
Pétursson). Um og upp úr 1960
byrjuðu stormmáfar að verpa á
ýmsum stöðum í Eyjafirði, við
Hörgá 1960, ósa Svarfaðardalsár
1962, í Laufáshólmum 1969 og
Hrísey 1970. Samkvæmt þessu hafa
þeir orpið reglulega í Eyjafirði frá
því skömmu fyrir 1960.
VÖKTU NARSVÆÐI STORMMÁFS
í Eyjafirði
Svæðið sem kannað er í Eyjafirði er
556 km2 að flatarmáli, eða um 0,5 %
landsins (2. mynd). Vestan fjarðar
nær athugunarsvæðið frá Ólafsfirði í
norðri, suður um Upsaströnd,
Svarfaðardal og Hrísey, Árskógs-
strönd og Gálmaströnd, Hörgár-
byggð (Hörgárdal, Öxnadal og
fyrrum Glæsibæjarhrepp), um
Akureyri, Eyjafjarðarsveit suður
fyrir syðstu byggð, út með Eyjafirði
að austan, um Svalbarðsströnd,
Kjálka og Höfðahverfi. Þorvalds-
dalur, afdalir Eyjafjarðarsveitar og
Látraströnd eru ekki tekin með enda
svæðin fremur óaðgengileg. Þar eru
auk þess frekar litlar líkur á varpi
stormmáfa miðað við aðstæður.
Látraströnd hefur verið könnuð með
tilliti til fuglalífs, þ. á m. stormmáfa,
en þeir hafa ekki fundist þar
verpandi (ST, óbirt gögn).
Næstu varpstöðvar stormmáfa
sem kunnugt er um eru annars
vegar að vestanverðu í Blönduhlíð í
Skagafirði og hins vegar austur í
Bæjarhólma í Skjálfandafljóti við
Ulfsbæ í Bárðardal. Á landsvísu er
Eyjafjörður umtalsverður hluti af
útbreiðslusvæði stormmáfa eða tæp-
lega þriðjungur allra 10x10 km reita
þar sem stormmáfar finnast verp-
andi (sjá 3. mynd).
NlÐURSTÖÐUR
Fjöldi varppara
Samfelld og stöðug aukning hefur
verið í fjölda verpandi stormmáfa í
Eyjafirði síðan 1980 (4. mynd).
Árið 1980 töldust vera 105-112
varppör, 239-244 árið 1990, 298 árið
1995 en 484 varppör árið 2000. Fjölg-
unin hefur verið nokkuð stöðug, að
jafnaði 7,8% á ári. I viðauka er skrá
yfir alla varpstaði stormmáfa sem
höfundum er kunnugt um í Eyjafirði
fyrr og síðar, auk fjölda varppara á
árunum 1980, 1990, 1995 og 2000.
Einnig er getið staða þar sem storm-
máfar hafa orpið þótt þeir hafi ekki
fundist í ofangreindum fjórum ár-
um.
Varpútbreiðsla
Árið 1980 var stærsta stormmáfs-
varpið í Eyjafirði við ósa Svarfaðar-
dalsár, ívið stærra en við Akur-
eyrarflugvöll. Árið 1990 var flug-
vallarvarpið komið fram úr því,
enda hafði stormmáfum fjölgað við
flugvöllinn en fækkað á sama tíma
við ósa Svarfaðardalsár. Stærsta stor-
mmáfsbyggðin árið 2000 var við
Akureyrarflugvöll, samtals 85 varp-
pör.
Næststærstu byggðimar árið 2000
voru við Munkaþverá (63 pör) og í
Hrísey (50 pör). Þá vom 23 pör á
147