Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 22

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 22
66 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiimiimimmiimmiiiiiiiiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiimiiiiiiiiuii||||ij||miiiiiiiiiiimi þar ekki aldur. Pokadýrin í Ameríku eru allólík frændum sín- um í Ástralíu, flest eru þau frumleg- að skapnaði, og smá vexti, en mjög blóðþyrst mörg þeirra, og gera oft mikinn óskunda á alifuglabúum manna. Sumstaðar í Ameríku eru sumar tegund- ir pokadýra einhver algengustu spendýrin þar. Skordýraætur eru mjög fáar í Nýja ríkinu, en af leðurblökum er mikið, meira en menn girnast. Flestar leðurblökur lifa annað hvort á skordýrum eða aldinum, en í Nýja ríkinu eru til tegund- ir, hinir svonefndu vampírar, sem sjúga blóð manna og dýra. I nýja ríkinu lifa nokkrar tegundir af þeim flokki spendýra, sem nefnist tannleysingjar, eða Edentata, þau helztu eru letidýr- in, mauræturnar og beltisdýrin. Letidýrin lifa eingöngu í skóg- um, og það meira að segja einkum hinum heitustu og votustu frumskógum, þau lifa á aldinum, og hanga í trjágreinunum, með kviðinn upp og hrygginn niður. Oft eru þau grænleit á að sjá, og algerlega samlit umhverfinu, en það stafar af því, að þörungagróður hefir tekið sér bústað í feldi þeirra, og verður þeim óbeinlínis til varnar. Á hinn bóginn lifa mauræturnar flest- ar á jafnsléttu, enda þótt örfáar tegundir hafist við í trjám. Þær eru einkennilegar að því leyti, að höfuðið er afarlangt, tennur eru engar, en tungan er löng og slímug, og vel fallin til þess að veiða með skordýr. Loks má geta þess, að dýr þessi ganga á handarbökunum. Einna einkennilegust eru þó beltisdýrin, vegna þeirrar miklu brynju, sem hornlag húðarinnar hefir myndað um líkamann. Plötur þær, sem á bolnum eru, girða dýrið eins og belti, og af því er nafn þess dregið. Þessir flokkar tannleys- ingja, sem hér hafa verið nefndir, hafa áreiðanlega átt upptök sín á því svæði, sem nú er heimkynni þeirra, enda eru þau ekki vel fallin til þess að dreifast um hnöttinn. En auk þeirra hefir fyr á tímum verið um auðugri garð að gresja á ættmeiði þeirra, því þá hafa lifað risavaxin letidýr, á stærð við nashyrning. Þau hafa gengið á handarbökunum, eins og mauræturnar gera nú, haft langan hala eins og þær, og í því verið frábrugðin letidýr- unum, en að öðru leyti líkst þeim mjög, og verið nánustu ætt- ingjar þeirra. Önnur tegund risadýra, sem nú eru úr sögunni, hefir að öllum líkindum lifað til skamms tíma, hún hefir verið á stærð við nautgrip, og sterkar líkur mæla með því, að frum- byggjar álfunnar hafi notað hana sem húsdýr. Meðal þeirra tannleysingja, sem lifðu í Nýja ríkinu á fyrri hluta nýju aldar- innar, voru hin svonefndu skjalddýr. Þau voru um þrír metrar á

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.