Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 28
72 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
..........................................................iiiiii
varð álfan aftur á móti að sjá á bak miklum þjóðflutningum
ýmissa dýrategunda, en það yrði of langt mál, að rekja það hér
til hlítar. í þessu sambandi skal það aðeins látið nægja að
taka fram, að til álfunnar runnu ýmsir merkir straumar úr ýms-
um áttum, en aðkomu-tegundirnar blönduðust smátt og smátt
þeim, sem til urðu heima fyrir. Svo þegar þessi þróun hafði stað-
ið um hríð, eða þegar kom fram á Nýju öldina, fór að bóla á
breytingum á afstöðu láðs og lagar, þær boðuðu þá fregn, að úr
þessu yrði álfan að mestu leyti að búa að sínu. Landbrýrnar,
sem til allra hliða höfðu tengt álfuna öðrum löndum, fóru hver
á fætur annari að sökkva í sæ, en jafnframt fóru meginlöndin
tvö að rísa úr sæ, og loks kom að því, að Suður-Ameríka varð
að heilsteyptu meginlandi, fyrst í stað umgirt sæ á alla vegu,
en að lokum skapaðist samband við Norður-Ameríku, svo að nýj-
ar tegundir dýra gátu farið þangað, og nýjar tegundir komið
þaðan.
C. Gamla ríkiö (Arctogea).
Áður gat ég þess, að þriðja og stærsta ríkið, sem ég nefndi
gamla ríkið, næði yfir mestan hluta Norður-Ameríku, alla Ev-
rópu, Asíu og Afríku, og auk þess hin norðlægu heimskauta-
lönd. Nú á tímum er dýralífið æði mismunandi eftir því hvar er
á öllu þessu mikla svæði, svo að manni skyldi í fljótu bragði
virðast ósanngjarnt að kalla þetta allt eitt ríki, en skipta því
ekki í fleiri. En svo er mál með vexti, að á Nýju öldinni í jarð-
sögunni, var miklu minni munur á dýralífi hinna einstöku landa
innan ríkisins en nú er, og þess vegna verður að skoða allt svæð-
ið sem eitt ríki, ekki sízt þegar litið er á það, hvernig hættir hafa
verið á síðustu tímum, alla leið fram að okkar stund. En til þess
að bæta úr því ósamræmi, sem virðist koma fram við það að
skoða alla þessa heild sem eina einingu, er ríkinu skipt niður í
svæði, en þau eru þrjú að tölu, nefnilega Afríkusvæðið, Ind-
landssvæðið og Norðursvæðið, sem grípur yfir allan þann hluta
ríkisins, sem er utan hinna svæðanna tveggja. Fyrst skulum við
nú snúa huganum að Afríkusvæðinu.
a. Afriku'Svæðið (Gtiópica).
Stórt á litið má segja, að Afríka sé að mestu leyti ein saman-
hangandi hálendisspilda, með mjög mismunandi loftslagi, og
mjög mismunandi landslagi, sem ekki er að furða, þegar tekið