Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 42

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 42
86 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN IIIIIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIII111111111111111111IIIIIIIII1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 eru þar engir. Eg hefi þó getið þess fyrr, að áður á tímum lifðu strútfuglar á þessu svæði. Af skriðdýrum er mikið. í stór-ánum eru krókódílar, sem heita gavíalar, einkennilegir vegna þess, að skoltarnir eru langir og trjónulaga, en annars eru þarna bæði afrískir krókódílar og am- erískir. Af slöngum, eðlum og skjaldbökum er einnig margt. Það væri ef til vill ástæða til þess að nefna á nafn eina tegund af eðl- um, aðeins vegna þess, að hún heitir dreki. Hún hefir húðfellingar miklar, sem hún getur svifið nokkuð með, en er lítil vexti, svo að þar getur ekki verið að ræða um dreka þá, sem nefndir eru í rím- um og þjóðsögum. Því hefir lengstum verið haldið fram, og það með réttu, að marg- ir og miklir straumar hafi komið hingað til Evrópu að austan, frá Asíu, bæði þjóðflokkastraumar, menningarstraumar og trúar- brögð; en það má segja um þetta sem svo margt annað, að gjöf skal gjaldast ef vinátta á að haldast, enda er það nú mikils til víst, að Indverska svæðið, eða kjarni hinnar suðrænu Asíu, hefir fengið mikla og merkilega stofna af dýrum að norðan fyrr á tímum. Á einum stað í Himalajafjöllunum sunnanverðum, staðurinn heitir Sivalik, hafa fundizt merkileg jarðlög frá því seint á Nýju öldinni. Jarðlög þessi sýna okkur greinilega hvernig dýralífi hefir verið háttað á svæðinu, sem eg nú hefi lýst, á þessum tímum, seinna hefir verið hægt að fylgja þessum sömu lögum alla leið vestur að Belutsjistan, langt inn í Kína og Japan, og alla leið suður að Sundaeyjum, og alls staðar hafa fundizt í þeim leifar dýra. Enn- þá merkilegra er það, að alveg samskonar lög hafa fundizt í Evrópu frá sama tíma, og af því er auðséð, að á nýju öldinni hefir dýra- líf um alla Evrópu og Asíu verið mjög líkt, enda hafa Himalaja- fjöllin þá verið miklu lægri en nú, og því ekki sá „Þrándur í Götu“ fyrir ferðum dýranna og nú á dögum. Á Indlandi lifðu þá ýmsar tegundir dýra, sem nú eru fyrir löngu úr sögunni eins og til dæm- is sverð-tígrisdýrið, og hin risavöxnu klaufdýr, Sivadýrið og Bramadýrið. En auk þeirra, og auk margra annara tegunda, sem nú eiga heima í Indlandi, voru þar þá til dæmis apar, sem nú eiga heima í Afríku; þar voru þá hirtir, antilópar, gíraffar, geitur og nílhestar. Þarna hefir verið blómaöld fyrir spendýrin, nokkuð fyrir Istímann; þarna hafa margar þeirra ættkvísla, sem nú eru algengar, víðsvegar um heiminn, orðið til, eða öllu heldur, þarna hefir farið fram lokapáltturinn í sköpun þeirra. Þarna hafa þá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.