Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 70

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 70
114 náttúrufræðingurinn að blöðin falla af trjánum. Hitinn er hér eklti einráður. Líka rná flýta fyrir laufgun með því að láta ljós skína á brumhnappana. Birtan virðist jafnvel hafa áhrif á frostþol plantna. Suður í löndum þrífast ýms tré í köldu loftslagi hátt til fjalla. En séu þau flutt norður á bóginn á staði sem hafa sama hita og þau áður áttu að venjast, þá þrífast þau ekki vel. Þetta hefir verið mikið athugað í Rússlandi. Tré frá fjöllunum á Krím voru gróðursett nálægt Moskva. En þau helfrusu jafnan á veturna. Þá var það ráð tekið að minnka við þau birtuna. Við þetta jókst frostþol þeirra og þoldu þau síðan vel vetrarkuldana hjá Moskva. Vegna áhrifa birtunnar geta aðeins ónæmar plöntur orðið alheimsborgarar. Skammdegis- plöntur þrífast bezt í hitabeltinu og langdegisplöntur í því tempr- aða. Birtan hefir því hönd í bagga með útbreiðslu plantnanna. Reglulegar langdegisplöntur bera t. d. aldrei blóm í hitabeltinu; aðeins blöðin vaxa. Afbrigði sömu tegundar eru oft misjafnlega birtunæm. Kartöfluafbrigði t. d. eru misjafnlega síðvaxin og mynda hin síðvöxnu aðallega kartöflur á haustin hér á Norður- löndum, þegar dimma tekur nótt. Bygg og hafrar eru langdegisjurtir. Þess vegna geta fáir stuttir (eða dimmir) dagar eftir spíruna, valdið því að blaðvaxtartím- inn lengist töluvert. Hvaða hlutar plöntunnar eru nú birtunæmir? Sprotaendar eru oft sérlega birtunæmir. Þaðan geta svo áhrifin leiðzt eftir plönt- unum og kemur hreyfingin t. d. móti birtunni, oft fram á öðrum stað, svo sem í blaðstilknum. Þannig er oft nóg að láta birtuna eða myrkrið verka á topp plöntunnar eða á kímblaðsslíðrið. Það er ekki sama á hvaða tíma sólarhringsins plantan verður fyrir áhrifunum. Hún er venjulega ónæmust um hádaginn. Birtu- áhrifanna gætir iðulega löngu eftir að plantan varð fyrir þeim. Síðari birtubreytingar geta ekki afmáð æskuáhrifin. Ef hirsi er haft í lítilli birtu í 9 daga á fyrsta vaxtarskeiðinu, verður það fullþroskað á 24 dögum. Langdegi síðar eftir þessa 9 daga breytir þessu ekki. Án þessarar myrkurspírunar þarf hirsið 51 dag til að þroskast við sömu skilyrði að öðru leyti. Það eru hinir rauðu geislar Ijóssins, sem valda birtuáhrifunum. Ljósmagnið hefir minni þýðingu en litur ljóssins. Tunglsljós og jafnvel götuljós geta haft áhrif. Ef til vill myndast sérstök efni (vaxtarhormon) í plöntunum við áhrif birtunnar. Þegar langdegisjurtunum, byggi, höfrum og hveiti er sáð seint, blómgast þær fyrr en ella og spíra

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.