Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 71

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 71
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 115 snemma. En við það verða þær oft veigalitlar og uppskeran lítil. Þarf því að sá snemma til þeirra. Kartöflur vaxa bezt, þegar birtan er um 12 tíma á sólarhring. Hjá tegund, sem var reynd við þau birtuskilyrði, voru kartöflurnar 1,9 kg. en kartöflugrasið 1,1 kg. En þegar birtan var 18—19 tímar urðu kartöflurnar að- eins 1,8 kg. en grasið 2,5 kg. Svo öflug eru áhrif birtunnar. Hitastigið hefir auðvitað einnig mikil áhrif á blaðvaxtar- og blómgunartímann. Þegar vor- og vetrarsáðkorni er sáð að vor- inu, þroskast vorsáðið eðlilega og ber blöð og blóm, en vetrar- sáðjurtirnar bera aðeins blöð. Vetrarsáðið þarf að verða fyrir kuldaáhrifum svo það geti blómgast. Kuldinn hefir áhrif á með- an á spírun stendur og nokkurn tíma á eftir. Sé því t. d. vetrar- byggi sáð að vorinu á köldum stað við 0°—1° og síðar sett út á vaxtarstaðinn, þá þroskast það sem vorbygg. Hinn lági hiti í viku til hálfan mánuð flýtir mjög fyrir blómgun og axmyndun. Kím- plöntur af „Artiskok“ eru lagðar á ís til að flýta fyrir blómgun. Þessar örvunaraðferðir hafa einkum Rússar hagnýtt sér í stór- um stíl (Yarowisation). Svíar, Ameríkumenn o. fl. þjóðir gera einnig víðtækar tilraunir með þessi birtu- og kuldaáhrif og með góðum árangri. Hér á landi er Klemens á Sámsstöðum byrjaður á slíkum tilraunum. Hér er sumarið stutt. Getur því vaxtarörvun korns haft stórkostlega þýðingu. Sé hægt að láta kornið þroskast á 10—12 daga skemmri tíma en nú, yrði kornræktin örugg í flest- um sveitum landsins. Loks má nefna að við skort á köfnunar- efni dregur úr blaðvextinum, en plönturnar blómgast þá fyrr en ella. Birtan hefir einnig áhrif á dýrin. Nokkrir starar voru hafðir í búri. Þegar ljós var látið skína á þá frá sólarlagi til miðnættis, mynduðust í þeim kynfrumur um háveturinn, en það er óvenju- legt. Hinsvegar mynduðust engar kynfrumur í störunum að vor- inu ef ekki var haft bjartara á þeim en sem svarar vetrardaga- birtu á Englandi. En þar voru tilraunirnar gerðar. Sumir álíta jafnvel, að birtubreytingar vor og haust eigi einhvern þátt í því hvenær farfuglar leggja af stað í ferðir sínar. Er af öllu þessu augljóst, að áhrif birtunnar eru mikil og margvísleg. Ingólfur Davíðsson. Heimildarrit: D. Muller: Daglængdens Virkning paa Planterne („Naturens Verden“, júlí 1934). Georg Borgström: Nordisk Familjeboks Manadskronika í febrúar 1938. 8*

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.