Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 82

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 82
126 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII>IIIIIIIIMIIIIIIIIIIIII>IIII>II>IIIIIIII1IIIIIIIIIIIIII>IIIIIIIII*>III>I>* sýki) og sjö misræm (aðeins annar var sjúkur). En af tuttugu og sjö tvíeggja tvíburum voru aðeins þrír samræmir og tuttugu og fjórir misræmir. Þannig lítur út fyrir, að tilhneyging til sykur- sýki sé ættgeng. Athuganir Diehle’s og Verschuer’s á berklaveiki í 51 eineggja og 81 tvíeggja tvíburapörum er sérlega athyglisverð. Af þeim ein- eggja höfðu báðir berkla á sama stað í 69% allra athugaðra, en bara annar í aðeins 31%. En meðal hinna tvíeggja voru báðir berklaveikir í aðeins 26 % hinna athuguðu, en annar í 74 %. Þessar tölur sýna skýrt, að eineggja tvíburarnir eru yfirleitt samræmir, en þeir tvíeggja áberandi misræmir með tilliti til berklaveiki. En nýjasta dæmið frá þessu sviði rannsóknanna er um tvo eineggja bræður, sem ólust upp fjarlægir hvor frá öðrum. Annar þeirra bjó hjá lækni í Berlín, og lifði ágætu lífi borgarbúa, en hinn var á sveitabæ í Bayern. Nú eru þeir báðir 27 ára gamlir. En í fyrra veiktust þeir báðir af berklum í nýrum í sömu vikunni, og við nánari rannsókn kom í ljós, að skemmdin var á nákvæmlega sama stað í hægra nýra annars og vinstra nýra hins. Þar eð eineggja tvíburar eru venjulegast eins og spegilmynd hvor af öðrum, er þetta dæmi auk hins áðurnefnda nóg til að óhætt sé að fullyrða, að móttækni fyrir berklaveiki sé að einhverju leyti arfgeng, auð- vrtað innan vissra takmarka, því að eftir ytri aðstæðum geta sýklasjúkdómar vafalaust sýkt jafnt mjög móttæka sem lítt mót- tæka menn, allt eftir því, hve sterk smitunin er. Ýmsar tegundir geðveiki eru ættgengar, eins og til dæmis hið svonefnda „schizofreni". Arfgengi þess hafði áður verið athugað hjá ýmsum ættum, en við rannsókn Luxenburger’s á eineggja tvíburum, höfðu í 52 tilfellum báðir sjúkdóminn, en annar í að- eins 11 skipti. Hjá tvíeggja tvíburum fann hann sjúkdóminn að- eins í þrem tilfellum hjá báðum tvíburunum, en í 47 tilfellum hjá aðeins öðrum. Ættgengi þessa ægilega sjúkdóms er því vafa- laust, en ytri kjörin verka líka vafalaust mjög á hann, það sýndu hin ýmsu stig hans meðal beggja einstaklinganna. Svipað hefir orðið Ijóst af rannsóknum á ýmsum öðrum geð- sjúkdómum og á öðrum sálrænum sjúkdómum eins og t. d. niður- fallssýki (epilepsi). En þó fer því fjarri, að öll sálsýki sé ætt- geng, og þótt hún sé ættgeng er hún ekki allt af ólæknanleg, en þó aðeins læknanleg hjá sjálfum sjúklingnum hið ytra, en gengur jafnt í ætt hans fyrir það. Það hljómar líkt og æfintýri, en það er vísindalega staðfest, að

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.