Náttúrufræðingurinn - 1993, Qupperneq 35
Ólafur K. Nielsen
Upphaf óðalsatferlis
rjúpu á vorin
INNGANGUR
Þýðingarmestu varplönd rjúpu (Lag-
opus mutus) á íslandi eru þingeysku
lyngheiðarnar (Finnur Guðmundsson
1960). Rjúpurnar yfirgefa þessi svæði
á haustin og snúa ekki aftur fyrr en
næsta vor (Arnþór Garðarsson 1971).
Það er hátíð í ranni fálkans (Falco
rusticolus) þegar rjúpurnar koma úr
vetrarhögum og talið er að þeir
atburðir marki upphaf varptíma hans
(Ólafur K. Nielsen og Cade 1990a,
Poole og Bromley 1988). Nokkrar
athuganir hafa verið gerðar á varp-
tíma fálka hér á landi (Ólafur K.
Nielsen og Tom J. Cade 1990a, Ólafur
K. Nielsen, óbirt gögn) en minni upp-
lýsingar hafa birst um komutíma
rjúpna á varpstöðvarnar og hvenær
karrarnir helga sér óðul (Arnþór Garð-
arsson 1971). í þessari ritgerð ætla ég
að gera grein fyrir athugunum mínum
frá Norðausturlandi á dreifingu rjúp-
unnar á veturna og komutíma á varp-
stöðvar á vorin og bera þessi gögn
saman við aðrar tiltækar íslenskar
heimildir. 1 lokin er ætlunin að skoða
hvernig upphaf óðalsatferlis rjúpunnar
fellur saman við varptíma fálkans.
ATHUGANASVÆÐIÐ OG
AÐFERÐIR
Eg vann við fálkarannsóknir í Þing-
eyjarsýslum veturna 1983-84 og
1984-85 og öll vor og sumur
1981-92. Aðalstarf mitt á veturna var
að heimsækja ákveðin fálkaóðul,
samtals um 35, fylgjast með viðvist
fálka á þessum óðulum og safna fálka-
ælum til að ákvarða fæðu (Ólafur K.
Nielsen og Tom J. Cade 1990a,
1990b). Þessi óðul voru á Melrakka-
sléttu, í Núpasveit, Öxarfirði, Keldu-
hverfi, á Tjörnesi, í Reykjahverfi,
Aðaldal, Laxárdal, Reykjadal, Mý-
vatnssveit, á Mývatnsöræfum og í
Ljósavatnsskarði. Reynt var að komast
á þessa staði einu sinni í mánuði yfir
veturinn. í þessum ferðum fór ég fót-
gangandi eða á skíðum hundruð kíló-
metra um heiðar og hraun. Eins og fyrr
sagði var markmiðið ekki að leita að
rjúpum en ég skráði hjá mér allar
rjúpur sem ég rakst á og tilgreindi í
hvaða kjörlendi þær voru. Kjörlendinu
var skipt í þrjá flokka: lyngmóa, birki-
skóga og kjarrlendi og í þriðja lagi
hraun. dróðurfar hraunanna var um
margt líkt lyngmóum og ýmsir smá-
runnar ríkjandi á báðum stöðum en hér
réð landslag skiptingunni.
Veturinn 1983-84 var farið reglu-
lega í Hofstaðaheiði í Mývatnssveit
gagngert til að telja rjúpur. Þetta
svæði var 4,5 km2 og þar hafa rjúpur
verið taldar í maí á hverju vori frá
1981 (Ólafur K. Nielsen, í undir-
búningi).
Náttúrufræðingurinn 63 (1-2), bls. 29-37, 1993. 29