Náttúrufræðingurinn - 1993, Blaðsíða 41
4. mynd. Breytingar á
fæðusamsetningu á fálka-
óðali #305, júlí 1984 til
júlí 1985. Hreiðrið var
4,3 km frá sjó. Byggt á
fæðugreiningu úr ælum
(sbr. Ólafur K. Nielsen
og Cade 1990b). Changes
in food composition at
Gyrfalcon territory #305,
July 1984-July 1985.
The nest was 4.3 kmfrom
the coast. Based on pellet
analyses (cf. Nielsen &
Cacle / 990b).
ur lýst svipuðu fyrirkomulagi meðal
fálka í Northwest Territories í Kanada.
Þar hófst undirbúningur fyrir varp í
byrjun maí um leið og rjúpurnar komu
frá vetrarstöðvum sunnar í landinu.
2) Rjúpurnar verða viðráðanlegri
bráð fyrir fálkann vegna búsvæða-
skipta. Þær sækja úr fjalllendi, hraun-
um og skóglendi - búsvæðum þar sem
auðveldara er fyrir þær að verjast
fálka - út á heiðarnar.
Ef við lítum á varptíma fálkans sem
aðlögun að lífsferli rjúpunnar, á hvað
er hann þá að stíla? Rjúpnaveiði virð-
ist vera örugg fyrir fálka á meðan
karrar eru á óðulum, það er frá
miðjum apríl fram í miðjan júní, og á
þessum tíma drepa þeir aðallega karra.
Yfir hásumarið virðast fálkar eiga
erfitt með að finna rjúpur og þeir sem
geta snúa sér að annarri bráð, t.d.
öndum og svartfuglum. Eins og fram
kom hér á undan eru flestir fálkar
byrjaðir undirbúning eða jafnvel
orpnir áður en karrarnir helga sér
óðul. Af hverju ælti það að vera
fálkanum keppikefli að verpa jafn-
snemma og raun ber vitni? Fæðuþörf
fálkafjölskyldunnar nær hámarki um
tveimur til þremur vikum eftir klak og
síðan dregur úr henni (Poole 1986).
Þeir fálkar sem klckja sínum ungum
fyrir 30. maí ná að komast yfir þennan
hjalla áður en rjúpnaveiðin daprast
um miðjan júní. Fálkar sem verpa
seint, en búa nærri sjó eða lífríkum
vötnum, mæta vaxandi fæðuþörf ljöl-
skyldunnar með því að beina veiðinni
að öndum og svartfuglum. Þeir fálkar
sem búa fjarri slíkum matarkistum
halda áfram í rjúpu allt sumarið en
bæta sér rjúpnaleysi með mófugla-
veiðurn. Hungur og hungurdauði
fálkaunga er vel þekkt fyrirbæri. Tíma-
setningin virðist þannig miðast við
að bjarga sér á rjúpu eins rnikið og
hægt er áður en veiðin daprast í júní.
Annað skeið, sem skiptir líklega
miklu máli fyrir fálkann, er þegar
ungarnir yfirgefa foreldra sína og þurfa
að veiða ofan í sig sjálfir. Þeir fara frá
foreldrunum um mánuði eftir að þeir
verða fleygir (Ólafur K. Nielsen 1986)
og flestir ungarnir eru því á eigin
vegum í fyrri hluta ágúst. Þelta gerist á
sama tíma og rjúpnaveiði er að glæð-
ast á ný eftir sumarlágmark og nú
beinist veiðin að ungum frá sumrinu.
35