Náttúrufræðingurinn - 1993, Síða 45
Stefán Arnórsson
Jarðhiti
INNGANGUR
í þessari grein verður hinum almenna
lesanda gefið yfirlit yfir eðli og upp-
runa jarðhita á íslandi. Efnið er mjög
umfangsmikið og því nauðsynlegt að
stikla á stóru og velja úr, eðlilega það
sem höfundi þykir skipta mestu. Til
þess að reyna að gera greinina læsilega
og skiljanlega leikmönnum verður að
sleppa sem frekast er unnt ýmsum vís-
indalegum rökfærslum sem liggja að
baki túlkun á gögnum og mynda
grunninn að skilningi vísindamanna á
jarðhitanum. Skilningur á slíkri túlkun
útheimtir oft verulega kunnáttu í ýms-
um raungreinum, eins og jarðvísindum,
eðlisfræði, efnafræði og reiknifræði.
Raunar er það svo að allir vísindamenn
á tilteknu fræðasviði, eins og t.d. jarð-
fræði, skilja ekki niður í kjölinn ýmis
þau rök sem liggja á bak við lúlkun á
efnafræðilegum gögnum eða flókin
reiknilíkön, svo eitthvað sé nefnt, en
tileinka sér engu að síður niðurstöð-
urnar og taka þær góðar og gildar.
Slíkt er eðli vinnubragða í raunvís-
indum, sérstaklega þar sem stærðfræði-
legri rökhyggju er beitt, að kunnátta
mannkyns í þeirn efnum hefur aukist
með gífurlegum hraða ajít frá síðustu
öld. Hver vísindamaður hefur aðeins á
valdi sínu örlítið brot af þeirri þekk-
ingu sem til er, jafnvel á hans eigin
sérsviði. Ef til vill mætti segja að
kunnáttumikill vísindamaður þekki
sem svarar innihaldi einnar bókar á
geysistóru bókasafni. Með þessum orð-
um vill greinarhöfundur benda á að
sumt það sem á eftir kemur í þessu
greinarkorni þarf ekki að vera óyggj-
andi að allra mati, stangasl hugsanlega
á við einhver gögn sem höfundi er ekki
kunnugt um, þótt skrif þetta sé unnið
af bestu samvisku.
Þegar þessum inngangskafla sleppir
verður dregin upp mynd af hitaástandi
í iðrum jarðar og hvernig varmi mynd-
ast þar og flyst til yfirborðs. Þá verður
gefin lýsing á helstu einkennum jarð-
hita hér á landi. Raunar á þessi lýsing
einnig við um stóran hluta jarðhita-
svæða annars staðar í heiminum. Næst
verður lýst hugmyndum manna um
uppruna og eðli jarðhitans. Þessar hug-
myndir hafa breyst mikið í tímans rás
og á því augnabliki sem þetta er skrif-
að er afskaplega hæpið að sá skilningur
sem ég mun lýsa sé hinn endanlegi,
a.in.k. í öllum atriðum og ég vona að
svo sé ekki! Þá er líka rétt að benda á
að minn skilningur er ekki samhljóða í
öllu skilningi ýmissa annarra manna
sem vinna við jarðhitarannsóknir.
Ástæðan er líklegast öðru fremur sú að
þau gögn sem skilningurinn byggist á
eru ófullkomin, en mismunandi bak-
grunnsmenntun hefur líka áhrif. Sumir
kunna á jarðfræði, aðrir á eðlisfræði
svo eitthvað sé nefnt. I flestum til-
fellum er ekki einfalt að afla gagna
sem gefa einhlítar niðurstöður, a.m.k.
þegar um er að ræða rannsóknir á móð-
ur Jörð. Orsökin er bæði kostnaðarlegs
og tæknilegs eðlis. Það er meira að
Náttúrufræðingurinn 63 (1-2), bls 39-55.
39