Andvari - 01.01.1986, Blaðsíða 10
8
GUNNAR G. SCHRAM
ANDVARI
Móðir Gunnars, María Kristín, var dóttir Valgards Claessen
landsféhirðis, áður kaupmanns á Sauðárkróki og fyrri konu hans
Kristínar Briem. Valgard Claessen var fæddur í Danmörku en for-
feður hans voru Hollendingar sem þangað fluttu á átjándu öld.
Börn þeirra önnur voru þau Eggert hæstaréttarlögmaður og banka-
stjóri, Ingibjörg, kona Jóns Þorlákssonar ráðherra og Gunnlaugur
dr. med., læknir og forstöðumaður röntgendeildar Landspítalans.
Með seinni konu sinni, Önnu, átti Valgard Arent stórkaupmann og
Önnu, konu Ólafs Briem skrifstofustjóra.
Faðir Kristínar Briem var Eggert Briem sýslumaður á Reynistað í
Skagafirði en móðir hennar var Ingibjörg, dóttir Eiríks Sverrisson-
ar, sýslumanns í Rangárvallarsýslu. Meðal annarra barna þeirra
voru Eiríkur Briem prófessor og kennari við Prestaskólann, Eggert
Briem hæstaréttardómari, Sigurður Briem póstmálastjóri, séra Vil-
hjálmur Briem forstöðumaður Söfnunarsjóðs íslands, Páll Briem
amtmaður, Ólafur Briem alþingismaður, Gunnlaugur Briem versl-
unarstjóri, Halldór Briem bókavörður og Elín Briem sem skrifaði
Kvennafræðarann.
Æskuheimili Gunnars var að Fríkirkjuvegi 3 en þaðan var skamm-
ur spölur að Menntaskólanum þar sem Sigurður faðir hans gegndi
yfirkennarastörfum þar til hann lét af embætti vegna aldurs árið
1935. Systkinin voru sex, dæturnar Sigríður, Kristín og Margrét og
synirnir Valgarð, Gunnar og Jónas.
í minningum sínum sem Ólafur Ragnarsson skráði (1981) hefur
Gunnar greint frá því að stjórnmál hafi oft borið á góma á Fríkirkju-
veginum og raunar var það engin furða. Skúli föðurbróðir hans
hafði staðið í orrahríð baráttunnar um Uppkastið gegn Hannesi
Hafstein og var lengi einn einarðasti stjórnmálaforingi landsins. Að
því máli loknu tók við nýr kafli sjálfstæðisbaráttunnar sem lauk 1918
er ísland varð fullvalda ríki. En lokaáfanginn var eftir, fullt sjálf-
stæði lands og þjóðar. Þessir atburðir, glæstir foringjar og hin mikla
og oft harðvítuga þjóðmálaumræða þessara ára, hafa án efa vakið
stjórnmálaáhuga þeirra ungu manna sem á legg komust á þessum
árum. Þjóðin hafði sameinast í fögnuði yfir fengnu fullveldi 1.
desember 1918 en lokaáfanginn var enn hulinn mistri framtíðar.
Við þessar aðstæður riðluðust hinar gömlu stjórnmálafylkingar og
nýir flokkar voru stofnaðir sem enn eru sumir hverjir við lýði.
Gagnfræðaprófx frá Menntaskólanum lauk Gunnar vorið 1926,