Andvari - 01.01.1986, Blaðsíða 44
42
GUNNAR G. SCHRAM
ANDVARI
Bæði Steingrímur Hermannsson og Svavar Gestsson mótmæltu
þessum málflutningi og sögðu, að ummæli í þá átt, að þetta ríkis-
stjórnarsamstarf hefði átt sér lengri aðdraganda, væru tilhæfulaus.
Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, andmælti einnig um-
mælurri Geirs um að ég hefði verið í makki við Benedikt og aðra for-
ystumenn Alþýðuflokksins um stjórnarmyndun, þar sem ég yrði í
forsæti. Öllum þessum ummælum var mótmælt og þau hrakin af
forystumönnum þessara flokka frammi fyrir alþjóð.“
Þann 3. febrúar ritaði Gunnar forseta íslands bréf þar sem hann
staðfesti að þingflokkar Framsóknarflokks og Alþýðubandalags
hefðu samþykkt að taka upp viðræður við hann um stjórnarmynd-
un. Jafnframt hefði Eggert Haukdal, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, lýst því yfir að hann myndi styðja slíka ríkisstjórn og Albert
Guðmundsson að hann myndi verja hana vantrausti. Nokkrum dög-
um seinna tilkynntu þeir Pálmi Jónsson og Friðjón Þórðarson að
þeir myndu „ganga til liðs við dr. Gunnar Thoroddsen í viðleitni
hans til að binda endi á núverandi stjórnleysi í landinu.“ Með því
hafði meirihluti þingsins, 33 þingmenn, lýst stuðningi við slíka
stjórnarmyndun. í framhaldi af því kvaddi forseti íslands Gunnar á
sinn fund þann 5. febrúar og fól honum umboð til þess að reyna
myndun meirihlutastjórnar. Á þingflokksfundi í Sjálfstæðisflokkn-
um 7. febrúar gerði Gunnar grein fyrir einstökum atriðum stjórnar-
sáttmálans og bar fram þá ósk að þingflokkurinn yrði aðili að þessu
stjórnarsamstarfi á þeim grundvelli sem hann hafði kynnt. Því hafn-
aði þingflokkurinn. Daginn eftir, 8. febrúar 1980, var hin nýja ríkis-
stjórn skipuð á ríkisráðsfundi, þremur dögum eftir að forseti íslands
hafði falið Gunnari umboð til stjórnarmyndunar, en Framsóknar-
flokkur og Alþýðubandalag höfðu lagt það til við forsetann að hann
fæli Gunnari umboð til stjórnarmyndunar.
Auk hans skipuðu tveir af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins ráð-
herraembætti í ríkisstjórninni, þeir Friðjón Þórðarson og Pálmi
Jónsson.
í stjórnarsáttmálanum var fjallað að venju um helstu mál sem
ríkisstjórnin hugðist beita sér fyrir. Þar var lögð áhersla á að leitað
yrði eftir samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um niðurstöður í
kjarasamningum sem gætu samrýmst baráttunni gegn verðbólg-
unni. Það mark var sett að unnið skyldi að hjöðnun hennar á næstu
þremur árum. Þá var þar fjallað um eflingu atvinnuveganna, m. a.