Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1986, Page 108

Andvari - 01.01.1986, Page 108
106 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI raunar hver annarri betri. Að enduðum löngum degi er ein allra listfeng- asta sagan, segir frá feiga bóndanum sem er á heimleið til að deyja. Hér sem víðar notar Indriði bílinn sem hlutgervingu mannsins, samsamar hann mannlegri harmsögu. Frægasta dæmi slíks hjá Indriða er auðvitað í Sjötíu og níu af stöðinni. En í áðurnefndri smásögu er umhverfismyndin dregin upp af mikilli natni. Höfundur kann að láta glitta í sögu á milli línanna. Hér er ekki ráðrúm til að fjalla um hverja einstaka sögu í úrvalinu. Hins vegar er freistandi að reyna að skýra frásagnarhátt höfundar, hina nær- færnu, stílfærðu raunsæisaðferð sem hann ræktar með sér og hreinsar æ meir af öllum óþarfa. Aðferðin byggist á markvissri beitingu sjónræns stíls- háttar. Tökum sem dæmi kafla úr sögunni Heiður landsins. í henni er kyn- ferðisleg löðun eins og fínt spunninn strengur í frásögninni, en kímnin lík svölum andvara í hitamollu. Þetta skýrist best af dæminu. Hér er sviðið dregið upp með fáum dráttum og síðan sett á hreyfingu: Gistihúsið Brattahlíð stóð undir heiðinni að norðan. Það var þrifalegt hús og gljámálaðir bensíngeymar olíufélaganna stóðu í röð á breiðu hlaðinu. Bak við gistihúsið voru peningshús og gróðurhús og ekki langt frá stóð gamalt samkomuhús við nýja sundlaug og kartöfluflög til hliðar sundurskorin af heit- um lœkjum frá uppsprettunni ofar í heiðinni. Daníel ók rösklega í hlaðið og sveigði punga bifreiðina í stórum boga upp að bensíngeyminum. Hann hratt hurðinni upp og steig út í sólskinið. Það var heitt en hann vissi pað mundi kólna bráðlega; á pessum tíma dags fór að blása af hafi í Bröttuhlíð. Hár og grannur maður kom heiman frá húsinu. (Vafurlogar, 79—80) Þetta er næstum eins og kvikmynd. Ef við greinum textann sundur sjáum við hve nákvæmlega hann er unninn. Fyrst kemur fjarmynd: gistihúsið undir heiðinni og bensíngeymarnir fyrir framan sem valda því að bílstjór- inn stansar. Síðan hvarflar augað umhverfis, bak við gistihúsið til penings- húsa, samkomuhúss og sundlaugar sem verður raunar aðalsvið sögunnar. Þessu næst ekur bílstjórinn rösklega inn í kyrralífsmyndina, sveigir bifreiðina í stórum boga, — hann hratt upp hurðinni og steig út í sólskinið. Einungis val sagnorðanna sýnir hve kunnáttusamlega er haldið á penna. Og þegar hing- að er komið má söguhöfundur flytja sig inn í hugarheim bílstjórans: Hann vissi það mundi kólna bráðlega. I þessu dæmi er frásagnaraðferð Indriða fullkomnuð. Við sjáum í sög- unni í fásinninu hvernig miðlað er sterkri tilfinningu gegnum frásögn sem virðist hversdagsleg og stefnulaus. Tveir menn láta brennivínsflösku ganga á milli sín og tala um kvenfólk, Dóri ekur fullur og drepur kött, vek- ur eiganda hans upp um hánótt til að bjóða bætur og kaupa bensín. Gegn- um frásögnina seytlar kennd leiðans, — í þessu samfélagi gerist ekki neitt, þegar fullnægingu hvatanna sleppir hafa menn ekkert við að vera: „Ég segi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.