Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1986, Page 109

Andvari - 01.01.1986, Page 109
ANDVARI SJÓNARHÓLL SÖGUMANNS 107 enn: þeir ættu að sjá til þess kæmu alminlegar stelpur í sveitina. Þeir í pólitíkinni tala um fólksflótta og rafvæðingu og nýbýlasjóði: hvað stoðar það.“ (Vafurlogar, 90) Hér er komin áþekk mannlífsmynd og lesendur Indriða þekkja best úr Landi og sonum (1963). í fásinninu má kalla nokkurs konar aðdraganda þeirrar skáldsögu. Að listrænni gerð er eitt eftirtektarvert, samtölin. Hinn stuttaralegi samtalsstíll er vel til þess fallinn að miðla tómleikanum. Það var einmitt algeng aðfmnsla um Land og syni sem hver át eftir öðrum að sam- tölin í þeirri sögu væru „óeðlileg". Slíkt ber vott um frumstæða raunsæis- stefnu sem Indriði aðhyllist einmitt ekki. Hins vegar hattaði fyrir í stíl sam- tals annars vegar, frásagnar og lýsingar hins vegar í sögunni. í smásagnasafninu Mannþingi (1965) heldur Indriði fram stefnunni. í Vofurloga eru teknar fimm sögur úr þeirri bók. Af þessum sögum eru Hófa- dynur um kvöld og Vor daglegi fiskur einna minnilegastar. Sú síðarnefnda er þorpsmynd, ljóslifandi í augum allra þeirra sem slík þorp þekkja, og enn er bílstjóri í sjónarmiðju. Þeirri starfsstétt hefur Indriði lýst af mikilli natni svo að lesandinn finnur næstum svitalykt og bensínþef af textanum. Hófa- dynur um kvöld er annars eðlis: þar er sagan sjálf löngu að baki. Þetta er saga í klassískum raunsæissniðum. Tveir menn á hóteli, ogannar rifjar upp tuttugu ára gamalt ástarævintýri. Úr Mannþingi er ástæða til að sakna einn- ar sögu í Vafurlogum: Dagsönn við ána. Það er bernskuminning um réttar- dag, nátengd Landi og sonum. Önnur sveitasaga, Lífíð í brjósti manns, er aftur efnislega skyld Pjófi í paradís (1967) enda rituð sama ár, birtist þá í þessu riti og síðan í safnriti Kristjáns Karlssonar. Þetta er afburðavel rituð saga, umhverfís- og mann- lýsingar í fullkomnu jafnvægi. Lífið í brjósti Mýrarhúsa-Jóns eru hestar hans, þegar þeir eru horfnir má einu gilda um bæinn enda brennur hann ofan af Jóni drukknum. - Yngstu sögur bókarinnar nefnast Kaldur staður og Aprílsnjór. Sú síðartalda er augljóslega sjálfsævisöguleg, af sama toga og Unglingsvetur (1979), síðasta skáldsaga Indriða til þessa, gæti raunar heitið sama nafni. Hér segir af unglingi sem fer í fyrsta sinn að heiman til vetrar- dvalar í skóla. Aprílsnjór er ekki svipmynd eins og flestar sögur Indriða heldur röð mynda. Oft hefur því verið lýst í sögum og minningum hvernig Reykjavík kemur sveitapilti fyrir sjónir í fyrsta sinn. Aprílsnjór er meðal þess nærfærnasta um þá reynslu. Þannig hafa Vafurlogar að geyma ýmsa sagnaskemmtun. En þar sem sög- ur bókarinnar tengjast svo mjög skáldsögum höfundar eins og hér hefur verið drepið á er freistandi að halda þessu máli áfram. Um skáldsögur Ind- riða verður að vísu ekki fjallað eins ítarlega og vert væri að þessu sinni. Fá- einar athugasemdir um höfundarferil hans læt ég þó fylgja hér.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.