Andvari - 01.01.1986, Side 119
ANDVARI
GÍSLI BRYNJÚLFSSON OG NORÐURFARI
117
Dagbók Gísla Brynjúlfssonar er hin besta heimild um hvernig Norður-
fari varð til. Hinn 9. febrúar skrifaði Gísli í dagbókina: „Til Bensa kl. 4. Við
töluðum ýmisl(egt) saman, og þó okkur stundum beri á milli, og honum
sinnist við mig og hanh þykkist, þá get eg ei annað sagt en að hann er einn
besti ísl(endingurinn) hér.“ —
Svipaðar umræður áttu sér stað við Jón Thoroddsen. Annanjanúar 1848
skrifaði Gísli í dagbókina: „Talað við Jón Þórðarson. Eg dáist að kvæði hans
Eyju hvítri áa. Hvað það er innilegt, græskulaust gaman, indælt og heima-
legt, einsog eftir Jónas sál. Hallgrímsson."
Undirbúningurinn að útgáfu Norðurfara hófst í febrúarlok. Hinn 29. fe-
brúar skrifaði Gísli í dagbókina: „Á fætur kl. 10. Bensi kom, og töluðum við
um ritið okkar, . . .“ og 6. mars segir dagbókin svo frá: „Við þrír, Jón og eg
og Bensi héldum fund kl. 5 um útgáfu Norðurfara, sem [svo] á að heita,
leiðinlegt er að gefa út með öðrum og mega svo til að gefa út eitthvað móti
vilja sínum.“
Daginn eftir fóru Gísli og Jón Thoroddsen til Möllers prentara og sömdu
við hann um prentunina og síðan var fenginn pappír hjá Wancher, og
sama daginn hreinritaði Gísli Jakobsgrát. Næstu dagana greinir dagbókin
frá undirbúningnum, hreinritun kvæða og samningu ritgerða. Þeir lesa yfír
kvæði og ritgerðir hvor hjá öðrum og hinn 23. mars segist Gísli hafa „skrif-
að nokkuð langan kafla um steinkerlinguna í ferðasögu Jóns Þórðarsonar."
Sunnudaginn 26. mars fór Gísli: „Til Jóns Þórðarsonar á fund, en Bensi
kom ei,“ kann að vera að samkomulagið hafi verið tekið að versna við
Gröndal og Gísli gagnrýnni á hann en áður, því að 17. apríl skrifar Gísli í
dagbókina: „Á Félagsritafund. Eg skil ei, því Jón vill hafa kvæði eftir Bensa,
sem ei skilur neitt í mannssálinni og ei getur hugsað eina hugsan.“ Sam-
komulagið fór dagversnandi því að 23. apríl stendur í dagbókinni: „Með
Bensa inná Norðurhöll, hann er leiður með heimskureiging.“ Brátt skildu
leiðir útgefendanna og Gísli skrifaði 27. apríl í dagbókina: „Nú er kl. 12, og
lítið hef eg enn gjört í dag, því eg svaf lengi; þó hef eg byrjað á þætti frá
Evrópu í Norðurfara, sem eg nú er einn eftir við, því Jón er farinn í stríðið,
og í Bensa er hundur.“
Benedikt Gröndal greinir einnig frá stofnun Norðurfara og viðskilnaði
sínum við útgáfuna í Dægradvöl. Sú frásögn er á þess leið: „Við ætluðum
allir að gefa út „Norðurfara", og var hugmyndin írá Gísla, sem ætlaði að of-
bjóða öllu með sinni evrópeisku pólitík; við fundumst í herbergi Jóns, og
þar hundrifumst við Gísli, en Jón var alltaf að stilla til íriðar, og ég gekk
loksins frá öllu saman, þó ég eigi þar fáein kvæði og greinina um „Alham-
bra“.6
Þegar Gísli var orðinn einn eftir kom í hans hlut að leiða útgáíuna til
lykta og 14. apríl skrifaði hann í dagbókina að Norðurfari sé albúinn af