Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1986, Page 130

Andvari - 01.01.1986, Page 130
128 AÐALGEIR KRISTJÁNSSON ANDVARI ingunni til að auðvelda mönnum að kjósa. „Það er því uppástunga vor, að menn skipti öllu landinu í eins mörg kjördæmi eins og þingmenn eiga að vera margir, og hvert kjördæmi velji sinn þingmann út af fyrir sig. í þessari niðurskipan kjördæmanna, ættu menn þá einungis að hafa tillit til þess hvað hægast og fyrirferðarminnst er fyrir þá, sem sækja eiga kjörfundinn, og hirða ei um þó sinn partur eins kjördæmis yrði sumstaðar í hverri sýslu, en þingstaðurinn skyldi ráða undir hvern sýslumann kjördæmið heyrði.“29 Að síðustu vék höfundurinn að þingstaðnum hver hann skuli vera eftir- leiðis. „Vér viljum ei leyna því, að vér erum úr flokki þeirra, sem álíta það fegurst og best að hið endurreista þjóðþing íslendinga sé sett á hinum fornu stöðvum forfeðra vorra við Öxará. Þar var í fyrstu gróðursett frelsi þjóðar vorrar, og hvað sem menn . . . segja um skáldlega hugarburði, þá er þó og verður Lögberg sá klettur, sem íslendingum ævinlega mun hugfelld- ast að byggja á þjóðfrelsi sitt . . .“30 Um þetta leyti varð Þingvöllur sam- komustaður þeirra sem beittu sér fyrir liðsafnaði í upphafi sjálfstæðisbar- áttunnar. Öflugustu stuðningsmenn Jóns Sigurðssonar — Hannes Stephensen og Jón Guðmundsson - stefndu mönnum þangað sumar hvert um nokkur ár til að móta stefnuna í sjálfstæðisbaráttunni og í kjölfar þeirra komu héraðsfundir vítt um land með líku sniði. Þegar þetta var ritað hafði verið haldinn Þingvallafundur sumarið áður og annar varð sumarið 1849. Vorþingsstaðir voru valdir til fundahalda í héruðum. Vitundin um frægð fornaldarinnar var að vakna úr dái og verða snar þáttur í veruleika dagsins. Fjölnismenn biðu lægra hlut varðandi þing- staðinn þegar alþingi var endurreist. Nú gátu þeir fagnað sigri á vissan hátt. Enn er ógetið smágreinar í síðara árgangi Norðurfara sem bar heitið „Bókafregn". Hún hefst á þeirri sþurningu hvort bókmenntum íslendinga hafí farið fram eða aftur síðan 1840, og niðurstaðan verður sú að nokkuð hafi miðað áleiðis og bendir á að fjögur tímarit hafí hafíð göngu sína á þessu tímabili og Austfirðingar ætli að stofna rit áþekkt Gesti Vestfirðingi í fjórðungi sínum. Höfundur gerir því skóna að Norðlendingar muni feta í fótspor þeirra. í framhaldi af þessu segir höfundurinn: „Sannast er það að segja, að á seinni árum hefur ástin á þjóðerni okkar vaknað, og með henni hefur líka ást á máli okkar lifnað og glæðst hjá landsmönnum, . . . Tvennt er enn á tímabili þessu, sem vér nú um tölum, er vér með rétti getum kallað meiri framfarastofn en allt annað: það fyrst, að upþfræðing prestaefna okkar hefur losað sig við einokun Dana; það annað að nú er loksins tekið til að kenna móðurmál okkar í skólanum, og veita þar þekkingu í norræn- um fornfræðum, og þannig búa efni vísindamannanna svo undir, að þeir á þjóðlegri hátt en verið hefur, geti frætt landa sína.“31 í greininni var rædd nauðsyn þess að upp komi bókaverslun í Reykjavík og í sambandi við hana bókaútgáfa. Erlendar bækur verði íslendingar að fá frá Kaupmannahöfn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.