Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1986, Page 165

Andvari - 01.01.1986, Page 165
ANDVARI „ÞAÐ LÝSTI OFT AF HONUM . . “ 163 heilbrigðislöggjafarinnar, en miklu víðar sér verka hans stað í löggjöf á sviði félagsmála og menningarmála. Það var ekki fyrr en á útmánuðum 1943, sem persónuleg kynni tókust með okkur Vilmundi Jónssyni. Ég var um það leyti tekinn að gerast alltíður gestur í Landsbókasafni og Þjóðskjalasafni og var stundum með frásögu- þætti í útvarpinu, myndir úr lífsbaráttu alþýðu, brot úr atvinnusögu og þesskonar. Oft leit Vilmundur inn á söfnin. Sýndi hann grúski mínu brátt nokkurn áhuga, tók mig einatt tali eftir flutning útvarpsefnis, gerði athuga- semdir, gagnrýndi eitt og annað af þekkingu og áhuga og á þann hátt að mér var fengur að. Stundum benti hann á verkefni sem gera þyrfti skil. Og þegar það barst í tal að ég væri að viða að mér efni í rit um þilskipaútgerð íslendinga, hvatti hann mig eindregið til starfa og benti mér á greinargóða ísfírðinga sem þarna gætu miðlað fróðleik. Á neðstu hæð Alþýðuhússins og í kjallara þess var á þessum árum rekinn matsölustaður sem hét Ingólfskaffí. Á eftirmiðdögum komu þar saman við tiltekið kaffíborð Vilmundur Jónsson, Árni Pálsson prófessor, Theódór Friðriksson rithöfundur og fleiri, en þessir þrír máttu teljast fastagestir um þrjú-leytið. Leið ekki á löngu uns ég fór að venja þangað komur mínar. Þarna var skeggrætt fram og aftur um alla heima og geima, dægurflugur og eilífðarmál og flest þar á milli. Og þótt kaffið væri í þynnra lagi og kleinurnar ekki alltaf nýsteiktar, hef ég ekki átt skemmtilegri stundir við annað nægtaborð en þetta. Árni Pálsson og Vilmundur voru báðir hreinir samræðusnillingar þótt ólíkir væru. Hafði myndast milli þeirra traust vin- átta, en þó fannst þeim fjarska gaman að stríða hvor öðrum og gerðu það einatt á dálítið galgopalegan, en bráðskemmtilegan hátt. Þetta kaffiborð hafði sterkt aðdráttarafl á fleiri en mig, enda var þar einatt setinn bekkur- inn og glatt á hjalla. Meðal annarra komu þangað öðru hvoru rithöfund- arnir og skáldin Þórbergur Þórðarson, Steinn Steinarr, Magnús Ásgeirsson og Tómas Guðmundsson. Oft urðu þarna fjörugar umræður um efni tíma- ritsins Helgafells sem þá bar hátt í menningarlífi þjóðarinnar undir stjórn þeirra Magnúsar og Tómasar. Stöku sinnum kom Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur og hafði margt til mála að leggja, enda stóð þá kaffitíminn einatt fram undir kvöldmat. — Mætti í tómi rifja upp eitt og annað sem eftir situr í minni frá þeim góðu og hraðfleygu stundum sem ég átti við þetta kaffiborð. Svo notalegt er að minnast þessara löngu liðnu daga, að jafnvel kaffið sem öllum fannst nær ódrekkandi er orðið afbragð í minningunni. Vilmundur Jónsson var maður ákaflega hreinskilinn og gat verið tannhvass, einnig þegar hann sá ástæðu til að gagnrýna vini sína. Kemur sá eiginleiki hans glöggt fram í bréfum þeim til Þórbergs sem birt eru í rit- safninu nýja. Einu sinni sem oftar kom Arnór Sigurjónsson að kaffiborðinu í Alþýðu-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.