Andvari - 01.01.1957, Síða 47
andvahi
HéraS milli sanda og eyðing þess
43
fellsjökli og er þessi skipan hans því vafalaust afleiðing af því
að báðar þ essar kirkjur, á Breiðá og Hnappavöllum, lögðust niður
vegna gossins. En telja rná nokkuð öruggt, að Þórarinn liafi látizt
seint á árinu 1364. Er því engin ástæða til að efa þá annála,
er ítarlegast segja frá gosinu, um að það hafi verið árið 1362.
Víkjum þá að gosinu sjálfu og afleiðingum þess. Þegar um
1600 virðist það orðin almenn skoðun, að það hafi fyrst og
fremst verið ægileg vatnsflóð, sem eyddu Litlahéraði. Þau hafi
heinlínis sópað burt byggðinni. Sú var og skoðun Þorvalds
T horoddsens. Hann telur, að mikið af hlaupinu hafi farið suður
úr gígnum og einkum komið fram undan Kvíárjökli. Byggir hann
skoðun sína á því, að vestan við þann jökul er ótvíræður jökul-
hlaupsframburður, s. k. Stórugrjót. En vafalítið tel ég, að þessi
framburður sé cldri en landnám íslands. Sörnu skoðunar eru
Kvískerjabræður, sem eru menn glöggskyggnir. Ég held, að hlaupið
hafi nær eingöngu farið svipaða leið og 1727, það er til vesturs,
niður undan Rótarfjallsjökli og Falljökli—Virkisjökli, beggja vegna
Sandfells, og þó einkum norðan Sandfells, enda segir Gottskálks-
annáll berum orðum, að jökullinn hafi hlaupið ofan á Lóma-
gnúpssand. Vafalaust hefur það verið mikið vatnshlaup og borið
fram feikn af aur og stórgrýti. Þar um er sjón sögu ríkari. En
Hð komumst þó ekki fram hjá þeirri staðreynd, að ekki tók það
Kauðalækjarkirkjuna og var hún þó niðri á láglendinu fram af
Sandfelli. Vafalaust voru margir bæir í Eléraði hetur varðir fyrir
vatnsflóðinu en Rauðilækur.
Skoðun mín er sú, að enda þótt bæi hafi vafalaust tekið af
1 hlaupinu, einkum í Rauðalækjarsókn, þá sé það ösku- og vikur-
fallið, sem hafi orðið lang afdrifaríkast í heild fyrir Hérað milli
sanda. Þessari skoðun finn ég nokkra stoð í samtímaannálun-
Urn> einkum annálsbrotinu frá Skálholti. Sandinn rekur saman
1 kafla, svo að varla sér húsin, og vikurinn rekur svo hrönnum
fyrir Vestfjörðum, að varla mega skip ganga fyrir. Þetta hendir
dl eigi smálítils öskufalls. Og ekki hafa það verið vatnsflóð, sem
eyddu miklu af Elornafirði og Lóni. Þar getur ekki verið nema
o o