Andvari - 01.01.1957, Qupperneq 85
ANDVARI
Brot úr verzlunarsögu
81
kalla, síðan enska verzlunin í Grafarósi lagðist niður, hafi á
Hofsósi, nema yfir þann tíma, sem lausakaupmenn hafa verzlað
á Sauðárkróki, verið réttnefnd einokunarverzlun." Fjórum dög-
um síðar en frétt þessi birtist í Norðanfara, ritar Benedikt Blöndal
í Hvammi Jóni á Gautlöndum um stofnun verzlunarfélagsins
við Húnaflóa en víkur síðan að Skagfirðingum: „Skagfirðingar
eru í vetur að safna vörum til að hlaða með frakkneska fiski-
skútu, sem þeir eiga, og er nú von til þeir reyni að senda til útlanda
í sumar. Austurhluti Flúnvetninga tekur eitthvað þátt í því með
þeirn. Þá verða nú Eyfirðingar ekki á eftir með Gránu, og eru
þessi umbrot sannarlega gleðileg tákn tímanna, þeirra, að danskir
kaupmenn eyðileggist, en Islendingar lifi, og þá kalla ég vel
fara.“ — Þessi orð, sem nú voru tilfærð úr bréfi Björns Blöndals,
ætla ég að sýni allvel hughorf þeirra manna á suðvesturlandi og
norðurlandi, sem beittu sér fyrir samvinnu um verzlun bænda
og útvegsmanna allt frá Lómagnúpi suður og vestur um landið
og norður að Reykjaheiði á árunum 1868 til 1870, sem hér var
stuttlega frá greint..
(Heimildir: Skýrslur um landshagi á íslandi; Þættir úr sögu Þorláks Ó.
Johnsons, eftir Lúðvík Kristjánsson, Andvari 1956; Ævisaga Eiriks Magnús-
sonar, eftir Stefán Einarsson; íslenzka samlagið í Björgvin, eftir Gils Guð-
ntundsson, Réttur 1949; blöðin Norðanfari og Þjóðólfur 1868—1875; bréf og
dagbækur Tryggva Gunnarssonar í Þjóðminjasafni og Landsbókasafni o. fl.,
sem getið er jafnharðan í meginmáli).