Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 76
72
Þórir Þórðarson
ANDVARI
þeim menningar- og trúarbragðasamruna anstnrlenskra og vestur-
lenskra menningarstrauma og átrúnaðar, sem nefnist Hellenismi.
í samruna þessum þykir gæta bæði austurlenskra og vesturlenzkra
þátta. Oft hefir svo verið talið, að hins gríska þáttar gæti meir.
En sérfræðingar í austurlenzkum fræðum benda á það, að þáttur
austurlenskrar menningar sé mun meiri en talið hefir verið og
að hún hafi haft mikil og mótandi áhrif. Um þennan menningar-
samruna Hellenismans, sem er grundvöllur menningarsögu og
trúarbragðasögu þess tímabils, sem hefst með Alexander mikla
og stendur alla tíma Rómverska heimsveldisins, segir prófessor
Sigurbjöm Einarsson í bók sinni „Trúarbrögð mannkyns", kafl-
anum urn Hellenismann, svo:
„Að öðrum þræði er andrúmsloft Hellenismans mettað trúar-
legri leit og andlegum umbrotum. Meðal íbúa stórborganna, þar
sem öllum þjóðemum ægði saman, skorti ekki tækifæri til þess
að kynnast trúarbrögðum og trúarathöfnum af flestu tagi. Fjöldi
manna sótti þá helgistaði, sem þeir fengu komizt yfir, í leit að
andlegri svölun og gerðu sér far um að kynnast öllum nýungum
á trúmálasviðinu. Trúfélög urðu mörgurn uppbót fyrir tapaða ætt
og týnt þjóðerni. Og eins og fyrr segir höfðu langt að rekin goð
og annarlegir trúarsiðir seiðmagnað aðdráttarafl, ekki sízt ef yfir
þeim hvíldi hula helgra leyndardóma. En þetta tvennt — fjarrænn
uppruni og leynd — einkennir þau trúarbrögð, sem rnestra vin-
sælda nutu á hellenska tímanum".
Prófessor Sigurbjörn lýsir síðan hinurn ýmsu trúarbrögðum
eins og Isis-dýrkun, Mithra-dýrkun, Gnostisismanum og nýpýþa-
górismanum, sem er sambland af heimspeki og dulfræðum og
er endurvakning heimspekistefnu og trúarstefnu Pýþagórasar,
hins mikla heimspekings og stærðfræðings Grikkja, er uppi var á
6. öld f. Kr. Síðan segir prófessor Sigurbjörn í sama kafla:
„Öllum þeim trúarbrögðum, sem hér hefir verið skýrt frá,
er það sameiginlegt, að þau gáfu fyrirheit um náið samfélag við
þann guðdóm, sem þau boðuðu, og að menn gætu lifað afskipti
hans áþreifanlega og búið öruggir að þeim síðan í auðnubrigðum