Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 60
56
Björn Þórðarson
ANDVARI
þá hafa verið farin að bila. En vegna þess, að Sigurður erkibiskup
kom ekki til stóls síns fyrr en um haustið sama ár, hefur heimför
Magnúsar biskups tafizt, enda stefndi erkibiskup til biskupaþings
sumarið 1232 og að því loknu hefur Magnús biskup farið út.
Magnús biskup kom út að Gásum haustið 1232 og flutti bréf
erkibiskups um utanstefnu feðganna Sighvats og Sturlu. En vegna
þess, að Sturlunga segir og einn annáll, að Magnús biskup hafi
einnig haft meðferðis bréf erkibiskups um afsetning Guðmundar
biskups frá embætti, og merkustu fræðimenn hafa haft þetta
fyrir satt, er rétt að víkja nánara að þessu atriði.
Er Guðmundur biskup eftir dvöl sína í Þingeyjarsýslu og
Eyjafirði veturinn 1231—32 kom til Viðvíkur í Skagafirði á skír-
dag 1232, var þar fyrir Kolbeinn ungi með mikinn flokk og
rekur allt lið frá biskupi nema tvo klerka. „Kolbeinn lét biskup
fara heim til Hóla, og er hann þá tekinn í varðhald með því
móti, að hann var í einni stofu og klerkamir hjá honum; þar
svaf hann og þar mataðist hann, og þar söng hann allar tíðir
nema lágasöng. Engu réð hann nema þeim félögum, og engum
manni mátti hann ölmusu gera af líkamlegri eign, heldur var
hann haldinn sem einn arfsalsmaður; leið svo fram til þess er
Magnús biskup kom út að Gásum, með bréfum þehn, er erlii-
biskwp sendi þeim mönnum, er Guðmundi biskupi bægðu eða
buðu af embætti sínu eður honum vildu þröngva'. Þannig segist
Guðmundar sögu elztu frá (Bps. L 550). I Sturlungu segir frá
þessu alveg á sömu leið, nema í stað hinna skáletruðu orða hér
stendur þar: „Sigurðar erkibiskups, þeim er Guðmundi biskupi
buðu af embætti sínu' (Sturl. I. 337). Hér skýtur nokkuð skökku
við frásögn Guðmundarsögu um efni þeirra bréfa er Magnús
biskup flutti. En síðan er samhljóða frásögn í báðum þessum
sögum um það, að þetta haust hafi komið út bréf erkibiskups,
þar sem mælt var harðlega til þeirra Sighvats og Sturlu um Gríms-
eyjarför og annan mótgang við Guðmund biskup, þeim báðum
utan stefnt en það orðið að ráði, að Sturla færi fyrir báða (Bps.
I. 554, Sturl. I. 360). Ekki minnzt á afsetningu eða utanstefnu