Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 67
andvari
Magnús Gizurarson Skálholtsbiskup
63
þau hafa efalaust haft að geyma óskir eða skipun til landsmanna
um að taka sæmilega á móti þessum nýju kirkjuhöfðingjum.
Ætla má, að Magnús Guðmundarson, sem annars fóru engar
sögur af í Noregi, hafi vorið 1237 skrifað Magnúsi biskupi fregnir
al viðtökum þeim er biskupsefnin fengu hjá erkibiskupi og
hverju búast mætti við um skipun biskupa hér á landi. Er því
líklegt að Magnús biskup hafi fyrir andlát sitt gert þá ráð-
stöfun, að Brandur prestur Jónsson færi með biskupsvald í Skál-
holtsumdæmi þar til nýr biskup tæki við. Annálar segja, að
Brandur prestur hafi tekið þetta umboð árið 1238. Sennilega
hefur Brandur haft biskupsvald á hendi, er hann vorið 1238
lagði til við Orm bróður sinn, að hann sleppti Gizuri Þorvalds-
syni úr varðhaldi, sem Sturla Sighvatsson hafði sett hann í hjá
Ormi eftir handtöku Gizurar hjá Apavatni. En staðarforráð í
Skálholti hefur Magnús líklega falið Einari Þorvaldssyni, því
að þar er hann, þegar Sturla kemur þar eftir för sína til Odda
þetta vor.
Ef skipan Brands prests til þess að fara með biskupsvald til
bráðabirgða hefur verið ráðin í Noregi eftir að lát Magnúsar
biskups spurðist þangað, þá hefur hér notið við ráða einhvers
þeirra íslenzku höfðingja er þar voru staddir. Og þeirra líklegastur
er Snorri Sturluson, sem kynnzt hefur Brandi presti við dvöl sína
i Skál hjá Onni Svínfelling frá því á einmánuði 1236 og fram
á árið 1237.
Að lokum skal hér sleginn botninn í þetta æviágrip Magnúsar
biskups Gizurarsonar með því að taka það fram, að næsti ís-
lenzki eftirmaður hans á Skálholtsstóli, Árni Þorláksson, læri-
sveinn Brands Jónssonar, fæddist sama árið og Magnús biskup
andaðist.
5