Andvari - 01.01.1955, Qupperneq 8
4
Páll V. G. Kolka
ANDVARI
reki og hann, gerðist boðberi og frumkvöðull inna nýju lækna-
vísinda á íslandi. Það var Guðmundur Björnsson, síðar land-
læknir. En hinir tveir voru Guðmundur Magnússon frá Holti á
Ásum, fæddur 1863, og Guðmundur Hannesson frá Eiðsstöðum,
fæddur 1866, en þeir urðu báðir prófessorar í læknisfræði, svo
sem alkunnugt er.
Foreldrar Guðmundar landlæknis voru hjónin Bjöm Leví
Guðmundsson og Þorbjörg Helgadóttir, er byrjuðu búskap í Gröf
í Víðidal, en fluttust skömmu síðar að Marðarnúpi í Vatnsdal
og bjuggu þar til hárrar elli, enda var Guðmundur og systkini
hans jafnan kennd við þá jörð. Böm þeirra bjóna urðu alls 15,
þótt ekki næðu nema sex fullorðinsaldri.
Björn á Marðamúpi var rammur að afli, smiður góður og svo
mikið snyrtimenni í búskap, að annálað var, dulur í skapi og
hversdagsgæfur, en þungur fyrir, ef á var leitað. Þorbjörg kona
hans var greind kona og glaðlynd, rösk í framgöngu og dugleg
ljósmóðir. Svipaði Guðmundi í framkomu til móður sinnar, en í
útliti meira til föður síns, sem var jarpur á hár og skegg, kinn-
beinamikill, hánefjaður og gráeygður. BáSir voru góðir meðal-
menn á hæð, en þrekvaxnir, en sá var munur á málfæri þeirra,
að Guðmundur var manna málsnjallastur og þó lítið eitt nef-
mæltur, en Björn gamli var heldur ókarlmannlegur að raddblæ
og mjóraddaður. Bæði vom þau hjón af góðum og traustum ætt-
um. Bjöm var sonur GuSmundar smiðs og bónda á Síðu í Víði-
dal og Ytri-Völlum, GuSmundssonar á Húki, og konu hans,
Guðrúnar Sigfúsdóttur Bergmanns á Þorkelshóli. Þorbjörg á Marð-
arnúpi var dóttir Helga Vigfússonar í Gröf og Óskar Sigmunds-
dóttur frá Melrakkadal, en Helgi var af ætt Sigurðar sterka í
Holti í Svínadal, er kominn var af Bjarna lögréttumanni á Ey-
vindarstöðum, af inni fomu Geitaskarðsætt. Ættir þeirra Marðar-
núpshjóna hef ég rakið allítarlega í Föðurtúnum, einkum Berg-
mannsættina, og vísast til þess þeim, er nánar vilja vita. Þar em
og myndir þeirra beggja og Guðmundar sonar þeirra, er hann
/ar um eða innan við tvítugt.