Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 8
4
Eirikur Albertsson
ÁNDVARI
en að síðari manni Ólafi sekretera Stephensen í Viðey. En Guð-
rún Björnsdóttir (sýslumanns), systir Þórðar kancelliráðs, var
gefin Einari kapellan Tómassyni í Múla (prests Skúlasonar á
Grenjaðarstað), en sonur þeirra Guðrúnar og séra Einars var
séra Hálfdan prófastur á Eyri í Skutulsfirði, faðir Helga lect-
ors, föður mins. Einnig voru foreldrar föður míns náskyldir,
systkinabörn að frændsemi, því að Einar kapellan Tómasson,
faðir séra Hálfdanar, og Helga Tómasdóttir, kona séra Jóns í
Möðrufelli og móðir Álfheiðar, konu séra Hálfdanar, votu
systkini. En inóðir þeirra systkina og fyrri kona séra Tómasar
Skúlasonar á Grenjaðarstað var Álfheiður Einarsdóttir (próf-
asts Hálfdanarsonar að Kirkjubæjarklaustri), alsystir meistara
Hálfdanar, rektors að Hólum.
Móðir mín, Þórhildur Tómasdóttir, var, sem fyrr segir, dóttir
Tómasar Sæmundssonar á Breiðabólsstað í Fljótshlíð. En Sæ-
mundur bóndi, faðir Tómasar, var sonur Ögmundar jirests á
Krossi, Högnasonar prófasts á Breiðabólsstað, Sigurðarsonar
prófasts í Einholti, Högnasonar prests sama staðar, Ólafssonar
prests og sálmaskálds á Sauðanesi Guðmundarsonar (d. 1608).
En séra Tómas átti, sem fyrr segir, Sigríði Þórðardóttur sýslu-
manns í Garði Bjarnarsonar, en móðir Sigríðar og kona Þórð-
ar sýslumanns var Bóthildur Guðbrandsdóttir, bónda og hag-
yrðings, Einarssonar. Var móðir mín heitin eftir þeim háðum,
afa sínum og ömmu, en nöfn þeirra dregin saman í Þórhildar-
nafninu.“1)
Aðændingu getur dr. Jón þess, að hann sé í 12. lið kominn
af Jóni hiskupi Arasyni, í 10. lið af Oddi biskupi Einarssyni,
i 11. lið af Gisla biskupi Jónssyni og í 9. lið af Guðbrandi bisk-
upi Þorlákssyni.
Séra Helgi Hálfdanarson var skipaður kennari við prestaskól-
ann í Reykjavík 1867, er Sigurði Melsted hafði verið veitt for-
stöðumannsembættið, eftir að Pétur Pétursson hafði horfið frá
því og tekið við biskupsdómi. En upp úr fardögum 1868 flutt-
ist öll fjölskyldan frá Görðum til Reykjavikur. Var þá dr. Jón
1) Dr. Jón Helgnson: Það, sem á dagana drbif.