Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 37
andvahi
Dr. theol. Jón biskup Helgason
33
En eftir þvi sent árin liðu seitlaði liið nýja viðhorf gagnvart
játningarritum og trúarlærdómafræði í gegnum hina liörðu skel
gamállar guðfræði. Og nú þegar er jafnvel farið að tala um
.,nýju guðfræðina" sem gamla guðfræði. En illt er það, ef hún
yrði að slikri skel innan vébanda íslenzkrar kristni og guðfræði,
að annan eins skörung og dr. Jón þyrfti til þess að brjóta, því
að oft verður nokkurt hil á milli slikra manna sem hans í sögu
þjóða. Og mætti þá einnig fara svo með vorri eigin þjóð.
Við fráfall Þórhalls Bjarnarsonar biskups í árslok 1916 verð-
ur dr. Jón eftirmaður hans á biskupsstóli, skipaður i embættið
1917. Leikur ekki á tveim tungum, að umsjónarstarf hans
hafi verið rækt af liinni mestu vandvirkni og embættisrekst-
Urinn verið með miklum ágætum. Skipti þar engu máli, þótt
hann hefði ekki verið preslur í embætti, því að þekking hans
var orðin svo mikil um allt það, er að biskupsstarfinu laut,
vegna frábærrar þekkingar hans á kirkjusögu almennt og
hirkjusögu íslands alveg sérstaklega, að enginn stóð honum
iramar, enda ber öllum þeim mönnum saman um það, er störf-
uðu með honum í stjórnarráðinu, að þekking hans og dóm-
greind hafi verið frábær. Hann afgreiddi jafnharðan öll mál
það svo, að eftir var farið af stjórnarvöldunum. Marga sjóði
hafði hann með höndum og var fjármálamaður ágætur að því
er snerti starfrækslu þeirra. Hann var á biskupsárum sínum
h'atamaður að stofnun Prestafélags íslands og fyrsti formaður
þess; en það hefur oft unnið mjög að bættum starfsskilyrðum
Prestastéttarinnar. Og miklu meira en áður hafði verið, var
larið að hlynna að hýsingu á prestssetrunum, eftir að hann
Serðist biskup. í fjármálum var hann fremur íhaldssamur, en
hann. vissi og, að Alþingi var ekki örlátt á fjárveitingar til
hirkjumála, og því gagnslaust að spenna bogann um of, enda
ni 11 n fjárveitinganefnd hafa jafnan farið að tillögum hans.
^agði þingmaður einn eilt sinn, er að þessu var vikið: „Þegar
Ijárveitinganefnd leitaði álits bisluips, kom svarið um hæl, og
Inálið lá alveg opið fyrir; ekkert annað en að afgreiða það.“
Hann lauk yfirreiðum um landið á fáum árum og kynntist