Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 21
A NDVARI
Dr. theol. Jón biskup Helgason
17
prestsvígslu, til þess eftirleiðis að halda uppi fastri aukaguðs-
þjónustu annan hvern sunnudag i Reykjavikur dómkirkju,
þannig að staða yðar sé að öllu leyti óháð dómkirkjuprestinum
og að söfnuðurinn hafi enga heimtingu á þjónustu yðar lil
aeinna sérstakra prestsverka. Að öðru leyti vænti ég þess, að
þér, eftir samkomulagi við dómkirkjuprestinn, munið góðfús-
lega veita honum í forföllum hans þá aðstoð, sem hann kynm að
þarfnast, eftir því, sem hentugleikar yðar leyfa.
Gegndi dr. Jón þessari prestsþjónustu í 13 ár.
Frá nýári 1896 hafði hann ráðizt í að gefa út kristilegt man-
aðarrit, sem nefndist „Verði ljós! mánaðarrit fyrir kristindom
°g kristilegan fróðleik“. Fékk hann i félag með sér þá kandi-
datana Bjarna Simonarson og Sigurð P. Sivertsen. Voru þeir
meðútgefendur þar til þeir gerðust prestar. En árið 1898 varð
Haraldur Níelsson aðstoðarmaður dr. Jóns eða meðútgefandi að
klaðinu. Kom það út i 9 ár. Blað þetta féklc góðar undirtektir
hjá fjölda landsmanna, og urðu áskrifendur biátt 1200 1400.
Hjá því verður ekki komizt að nema hér staðar og athuga
nánar þessa blaðamennslu dr. Jóns Helgasonar, því að með
kenni verður hann brautryðjandi frjálslyndrar guðfræðistefnu
ionan íslenzku kirkjunnar, þeirrar guðfræði, sem nefnd hefur
Verið ný guðfræði. Og þessi áhrif hans náðu lengra. Þau hofðu
kin mikilvægustu áhrif á guðfræðilega skoðun og kirkjuleg við-
horf nieð Islendingum í Vesturheimi.
En áður en skýrt er frá þessum málurn er skylt að geta þess,
að frjálslyndur kristindómur með Islendingum var ekki óþekkt-
ur- þegar þér var komið sögu. Hinn stórmerki og frjálshuga
guðfræðingur, Magnús Eiríksson, mun sennilega hafa haft ein-
hver áhrif hér heima með ritum sínum.1) Að minnsta kosti ex
það athyglisvert, að um það bil, sem rithöfundarferill Magnúsar
er senx glæsilegastur, útskrifast tveir menn úr prestaskólanum,
er telja verður sérlega frjálshuga i trúarefnum. Annar þeirra
er séra Páll Sigurðsson i Gaulverjabæ, kandídat 1863. Ber pre-
'hkanasafn hans þess ljóst vitni, hve óánægður hann er rneð
H Eirikur Albertsson: Magnús Eiríksson, guðfraetSi lians og trúarlíf.