Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 82
78
Dteingríinur Steinþórsson
ANDVARl
að sauðfé sé mjög misnæmi fyrir mæðiveiki. Með það í huga
hefur nú verið sett á stofn fjúrhú á Hesti í Borgarfirði, og á
hlutverk þess að vera að gera tilraunir til að ala upp stofna af
sauðfé, sem sé svo lítt næmir fyrir mæðiveiki, að vanhöld verði
viðráðanleg. í öðrum héruðum hefur sú stefna sigrað að skera
niður allt sauðfé í heilum byggðarlögum og flytja síðan inn ó-
sýkt l'é. Hringl og stefnuleysi er því ráðandi um þessi vanda-
mál. Ég þykist sannfærður um það, að ekkert vit sé í að ætla
sér að skera niður allt sjúkt fé í landinu og rækta siðan heil-
brigðan stofn í þess stað. Það er engin leið önnur til bjargar
í þessu máli, en með úrvali og kynbótum að fá fram svo hrausta
stofna, að vanhöld verði ekki allt of mikil. Stofnun fjárbúsins
á Hesti er því merkileg tilraun í þá átt. Niðurskurður í ein-
stökum héruðum getur á engan hátt leitt til útrýmingar veik-
inni, og er af þeim ástæðum ekki einungis gagnslaus, heldur
getur hann verið hættulegur.
Sauðfjárrækt vor íslendinga verður að hvíla nær eingöngu
á innlendu sauðfé, sem verður að vísu að skoðast sem eitt
kyn, en þó mjög breylilegt eftir héruðum og eftir því, hve mikið
það hefur verið kynbætt. Ástæða mun vera til að reyna frek-
ara en enn hefur verið gert innflutning vissra, ræktaðra er-
lendra fjárkynja, því að þótt hörmulega hafi til tekizt um inn-
flutning fjárpestanna, þá þarf slikt alls ekki að endurtaka sig.
Enda nú fundin úrræði til þess að flytja sæði kynhótagripa
milli landa og á þann hátt framkvæma kynbætur án þess dýrin
sjálf sé flutt.
Síðustu árin hefur það farið mjög í vöxt við kynbætur bú-
fjár að viðhafa sæðingu. Það er, að sæði er flutt frá karldýri
til kvendýrs með sérstökum tækjum. Þessi kynbótaaðferð mun
verða geysimikið notuð framvegis og verða til þess, að ineiri
og örari framfarir verði um búfjárrækt, en þekkzt hafa áður.
Sérstaklega hlýtur þetta að vera mikils vert fyrir oss íslend-
inga, sem eigum lítt ræktuð búfjárkyn en með mjög verðmæhi
eiginleika. Ég nefni þetta hér sem eitt af verkefnum koinandi
ára varðandi kynbótastarf við búfé vort. Það, að viðhafa sæð-
ingu, gefur vonir um að fyrr megi takast að velja úr og kyn-