Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 84
80
Steingrimur Steinþórsson
ANDVARI
Um aðrar búfjártegundir mun ég verða mjög stuttorður, en
vil þó taka eftirfarandi fram:
Alifuglarækt hefur verið nijög Hlil hér. Hænsnum hefur þó
fjölgað ört síðasta aldarfjórðung. Án efa má auka hænsnarækt
mikið frá því, sem nú er. Þyrfti að taka þá grein búfjárræktar
föstum tökum, fá ráðunaut til leiðbeininga og eftirlits, því að
ýmis stór mistök eiga sér stað varðandi hænsnarækt.
Svínarækt hefur nokkuð vaxið síðustu árin, og stafaði það
því nær eingöngu af veru setuliðsins hér. Ég hef ekki trú á, að
svínarækt verði stunduð hér nema sem alger aukabúgrein.
Ýmsir vilja fá l'lesk stöku sinnum til smekkbætis. En sjálfsagt
er að verða við þeim óskum með iniileiidri framleiðslu. En
lengra hygg ég ekki, að gengið verði um svinaeldi fyrst um
sinn, þar sem langt á í land, að vér getum keppt við aðrar þjóðir
með flesk á erlendum mörkuðum, hvorki um verð né gæði-
Auk þess yrði fleskið keppinautur hæði innan lands og utan
við sauðakjötið, sem verður enn um sinn mikill hluti afurða
vorra.
VI.
Þessu næst skal nokkurum orðum farið um framleiðsluinál
landbúnaðarins.
Áður fyrr var framleiðsluháttum svo farið hérlendis, að hver
böndi inátti teljast einvaldur konungur í sinu ríki. Hver bóndi
framleiddi algerlega eftir eigin höfði án þess að vera i nokkur-
um félagsskap við stéttarbræður sína um þau mál. Þetta við-
horf hefur nú breýtzt allmjög. Á síðustu áratugum liafa bsend-
ur gert félög um framleiðsluvörur sínar — mjólkursanilög-
sláturfélög, sölumiðstöð fyrir grænmeti o. fl. — Þessi félög eru
öll reist á samvinnugrundvelli og hafa unnið bændastéttinni og
landbúnaðinum ómetanlegt gagn. En þetta skipulag hefur all'
mikið heft frjálsræði bænda um framleiðslumál sin. Þeir verða
að láta þessi félög verzla með vörur sínar, og þeir verða að
haga frainleiðslu sinni í samræmi við það.
Eins og framleiðslu- og viðskiptamálum er nú farið uni beun
allan, er það orðið úrelt og óhafandi, að ekkert skipulag sé uiu
]>að, hverjar vörur skuli framleiddar og hve mikið af hveru-