Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 73
andvari
Framtiðarhorfur landbúnaðarins
69
aldabúskaparlagi í búnaðarháttum í einum áfanga á fáum árum,
en taka upp sömu háttu og aðrar menningarþjóðir nota nú.
hetta er miklum erfiðleikum bundið fyrir 6000—7000 bændur,
dreifða um stórt og erfitt land. Til nauðsynlegra breytinga
þarf mikið fjármagn og mikla og margháttaða reynslu og þekk-
ingu. Hvort tveggja eigum vér til nú. Með þau vopn á lofti —
fjármagn, reynslu og þekkingu — verðum vér að leggja til at-
lögu við hvers konar erfiðleika og sigrast á þeim. Vér verðum
að breyta til um margt og taka upp nýjar aðferðir.
Það, sem hér verður frá sagt, er lauslegt hrafl af skoðunum
minum um það efni.
II.
Ef ræða skal um framtíðarhorfur landbúnaðarins og þá
liróun, sem framundan er um þau mál, verður ekki fram hjá
Því gengið, að athuga hver áhrif sá tryllti darraðardans, sem
nú gengur yfir heiminn, hefur haft fyrir þann atvinnuveg. Þetta
er þó ekki hægt til neinnar hlítar, því að enn er að miklu hulið,
i'ver þau verða. Síðustu árin fyrir heimsslyrjöldina var að
skapast eðlilegt og, að því er virtist, heilbrigt framfaratímabil.
Eftirköst landbúnaðarkreppunnar miklu voru að réna. Fram-
kvaeindir voru að aukast. Árin 1938 og 1939 voru geysimildar
framkvæmdir uin húsabætur í sveitum. Jarðræktarframkvæmd-
lr voru einnig í örum vexti el'tir kyrrstöðu kreppuáranna.
Þetta fékk snöggan og óvæntan endi, þegar styrjöldin skall
á- Ahrifa styrjaldarinnar gætti ])ó ekki að verulegu ráði fyrr
en á árinu 1940, þegar landið var hernumið. Þá .skapaðist hér
algerlega óeðlileg og óheilbrigð eítirspurn eftir vinnu. Afleið-
lng þess var stórfelldur verkafólksskortur i flestum atvinnu-
greinum, en bilnaði þó fyrst og fremst á landbúnaðinum og
)<om þyngst niður á honum. Þetta hefur haldizt svo síðan. Er
1111 svo komið, að bændur fá ekki nauðsynlegt fólk til búskapar-
starfa, jiótt boðið sé hærra kaup en algengir kauptaxtar ákveða.
Heíur Jietta valdið bændum geysilegum erfiðleikum eins og
Seta má nærri.
Framkvæmdir hafa dregizt saman til mikilla muna, sem