Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 68
64
Þorkell Jóhr.nncsson
ANDVARI
kaupmanna lögðust gamlir andstæðingar Magnúsar á móti
málinu af persónulegri óvild.
Magnús fór heim til íslands áður nokkur yrði úrslit máls-
ins. Hinn 28. júlí ritar hann Bjarna Thorsteinssyni og er þá
milli vonar og ótta: „Gott væri ef póstskipið flytli okkur ein-
hver hnggunartíðindi." Tiðindin lcomu i marz 1817 og voru
þau ekki sérlega huggunarrík. Um þau farast Magnúsi þannig
orð í bréfi lil Bjarna 13. júlí 1817 — og eru þau hæfileg niður-
lagsorð þessari frásögn, er nú hefir rakin verið um hríð. —
Bréfið er á dönsku, en er hér vikið á islenzku.35) „. .. Það má
einu gilda, hvað menn haí'a spáð Islandi mikilli velgengni,
svona á pappírnum, við þá skipan verzlunarmálanna, er nú
hefur gerð verið. Hversu mikið, sem ritað er og rökrætt um
djúpvizku þessarar ráðstöfunar, er eg, og svo allir íslendingar
hér, fullvissir þess, að oss endist ekki aldur til þess að sjá
þessar ónáttúrlegu vonir rætast. . . . Vér höfum, sem nauða-
fátæk þjóð, stynjandi langa hríð undir kaupþrælkunaroki,
vakið undrun annarra þjóða með þrautseigri þolinmæði vorri.
Svo sem hlýðin þjóð og lconungholl, stillt og full trúnaðar-
tfausts, andvörpum vér, þegar oss er fluttur boðskapur þessi:
Verði þinn náðugi vilji. En þegar einhver vor eigin manna,
er vér treystum fullkomlega, snvst jafnvel á móti hjálpræði
voru og' óskum, gengur það oss hálfu sárar til lijarta. Von-
laus sorg gagntekur mann. Vér tökum undir með skáldinu:
Ættjarðarvinurinn fyllist sorg og' gremju og óskar sér dauða,
svo að hann þurfi ekki að lcveljast lengur við að horfa á
þessa liryggilegu sjón. Og með Júlíusi Cæsar: Þú líka, sonur
minn, Brútus! Eins og hann gefum vér upp alla vörn, sveip'
um oss skikkju þolinmæðinnar: voninni, og tökum hverjn
lilræði örlaganna með staðfastri píslarvotts rósemi.“
') Lovsaml. for Isl. V. bd. l)ls. 301—316, sbr. 317—338; 117—462, sbr-
463—468. 2) Islands almindclige Ansögning til Kongen om udvidede Han-
dels-Friheder m. v. etc. Iíiöbenhavn 1797. 3) Lovsamling for Isl. VI- bd-
bls. 27—29 (1. júní 1792), og bls. 109—11 (23. april 1793). 4)Lovsamlinfí
for Isl. VI. bd. bls. 290—304. (Kgs. úrsk. 29. sept. 1797). 5) Lovsanilinf’
for Isl. VI. bd bls. 414—415. (12. des. 1799). 6) Sbr. Lovsamling for Isl-