Andvari - 01.01.1944, Page 26
22
Eirikur Albertsson
ANDVARI
með mestu stillingu. Lýsir hann yfir því, að liann ætli að lofa
nafna sínum óáreittum af sinni hálfu að standa í þessu máli
sem annar „Þrándur í Gölu“. Orðastað við séra Björn geti hann
því síður átt um þetta mál, vegna fordæminganna, sein hann
hafi notað í umræðunum.1)
Um nokkurn tíma mátti svo heita, að deilumálin lægi niðri.
Og í árslok 1904 hætli „Verði ljós“ að lcoma út. Kirkjublað
Þórhalls Bjarnarsonar hal'ði hætt að koma út skömmu eftir að
jieir þremenningarnir hófust handa um að gefa „Verði ljós“ út.
En hrátt var jiess saknað af ýmsum, að ekkert sérstakt málgagn
í frjálsum anda kæmi út með þjóðinni. Fór l>á Þórliallur að gefa
út Nýtl kirkjublað og var dr. Jón meðútgefandi að j>ví í tvö
ár. Var ]>að blað jafnan í frjálslyndum anda. Við þessi deilu-
inál um guðfræðina kom mjög við sögu vestan hafs séra Friðrik
Bergmann, og hér heima tóku á jtessum árum að koma rit-
gerðir um þessi mál eftir Harald Níelsson. En hann hafði um
langt skeið frá 1897 verið önnum hlaðinn við að vinna að
hinni nýju og ágætu biblíuþýðingu. Hann hafði því af eðlileg-
um ástæðum minnst um jiessi mál ritað. Dr. Jón Helgason hafði
og haft á hendi frá árinu 1898 endurskoðun á þýðingu nýja
testamentisins og lcoin i hans hlut rúmlega þriðjungur jiess
(Matth. og Jóh. guðspj., Bréfin til Rómv. og Korintumanna og
Efesusbréfið). Á þessum árum hafði og dr. Jón unnið í tveini
nefndum. Kosinn var hann 1897 í nefnd lil j>ess að endurskoða
handbók presta. Lauk nefndin störfum 1910, og var hin nýja
„Helgisiðabók fyrir hina íslenzku þjóðkirkju" prentuð á því
ári. Þá var hann einnig kjörinn i nefnd 1904 „til þess að íhuga
og koma fram með tillögur um kirkjumál landsins“. Lauk sú
nefnd störfum í apríl 1906.
Á þessum árum átti dr. Jón og hlut að máli um stofnun
„Hjúkrunarfélags Reykjavíkur“. Skýrir hann sjálfur þannig
frá um tildrögin að jiessari félagsstofnun:
„Sumarið 1902 var að forgöngu Oddfellowreglunnar hér í bæ
stofnað „Hjúkrunarfélag Reykjavíkur“, hið fyrsta þess konar
1) Vimlhöggva orustur í Sameiningunni, Verði ljós, nóv. 1901.