Andvari - 01.01.1944, Blaðsíða 46
42
Eiríkur Albcrtsson
ANDVARl
hans og áhrif hans um að inóta íslenzku kirkjuna á þann veg,
að frjálslyndi og víðsýni sæti þar í öndvegi, sanna það alveg
afdráttarlaust. En um eitt er hann alveg sérstæður allra ís-
lenzkra biskupa: Hann kynnir íslenzka kirkju og menningu
ineð miklum röggsamleik og þekkingu öllum Norðurlandaþjóð-
um og á sinn þátt í því með þessari starfsemi, að íslenzk þjóð-
arsál og menning væri leidd í kór hins sameiginlega norræna
musteris. En þetta stuðlaði aftur að því, þótt einkum hafi verið
eftir óbeinum leiðum, að sjálfstæðisréttur þjóðarinnar hlyti
fyllri viðurkenningu í stjórnmálasal Norðurlanda, unz hún nú
að lyktum hefur hlotið þar það öndvegisrúm, er henni bar.
Á bókfell íslenzkrar kirkjusögu hefur því dr. Jón Helgason
skráð nafn sitt gullnu letri. I biskuparöðum landsins stendur
hann jafnfætis hinum helztu og áhrifaríkustu biskupum um
að leiða hingað hollstrauma erlendra áhrifa. Um stjórnsemi
eru ekki aðrir kirkjuhöfðingjar honum röggsamlegri, og um
lærdórn og rithöfundarafköst er honum enginn fremri. Og hann
er alveg sérstæður um það að gera íslenzka kirkju kunna með
öðrum þjóðum og hefja liana þar til þess vegs og viðurkenn-
ingar, sem henni ber. Mætti því fara þannig, er öll kurl koma
til grafar, að dómur sögunnar yrði sá, að enginn kirkjuhöfð-
ingi á íslandi hefði verið honum fremri á liðinni tíð, þegar á
allt er litið.
í Jiessu ævisöguágripi dr. Jóns Helgasonar biskups hefur ver-
ið gerð grein fyrir áhrifum þeim, sem hann vegna uppeldis
og náms varð fyrir í guðfræðilegum efnu.m. Þá hefur og að
nokkru verið vikið að guðfræðistefnu hans og áhrifum þeim,
sem hún hafði á íslenzku kirkjuna og systurkirkjuna í Vestur-
lieimi. Enn fremur hafa Jiví verið gerð nolckur skil, hvílikur
kirkjuhöfðingi hann var á hiskupsstóli. Um ritstörf hans er
minna en vert væri, og hvilíkur afbragðskennari hann var.
Kennslu lians og ritverkum er því að mestu ólýst. Og eftir er
að lýsa mánninum, persónulýsiiig getur Jietla ekki talizt. Eftir
er að lýsa heimili lians, hversu liann naut sín Jiar vel í önnuni