Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 51
Björn Jónsson
XLV
hann hafði átt einna drýgstan þáttinn í því að fá Upp-
kastinu hafnað, og það tók þá sárt, því að þeim fanst
þeir liefðu gert góð boð, og að íslendingar hefðu nú
slegið á þá hönd, sem rétt hefði verið að þeim í
bróðerni. Dönsk blöð hefndu nú þessa alls með því
að flytja hin og önnur endileysu-ummæli, sem þau
þóttust hafa eftir B. J.1) Afskræmingarnar voru jafn-
harðan símaðar hingað, meðan B. J. var í Kaup-
mannahöfn. Út úr því var þá þegar gerð tilraun inn-
an Sjálfstæðisflokksins lil sprengingar. En sú tilraun
mistókst að því sinni.
1) Einn danakur blaðamaður. hr. Arnskov, var svo
drenglyndur að lýsa yfir því, að ummæli B. J. hefðu verið rang-
færð í þvi blaði, sem hann ritaði fyrir — ekki af lionum sjálfum,
heldur af ritstjórninni.
Annars er það eftirtektarvert, með hve miklum skorti á
samvizkusemi dönsk blöð herma ummæli manna. Það stingur
mjög í stúf við atferli onskra blaða í því efni, og eg held við
atferli blaða í öllum öðrum löndum. Að minsta kosti er þessu
svo háttað, þogar við íslendingar eigum hlut að máli, og Danir
þykjast sjá sér oinhvern Ieik á borði, til ’þess að gera okkur
vanvirðu. Rétt til dæmis bendi eg á það, þegar hljóðfærameíst-
arinn Shattuck kom héðan til Danmerkur. Eitt danska blaðið
að minsta kosti flutti cítir honum hin oflátungslegustu og ill-
girnislegustu ummæli í okkar garð, eftir þær góðu viðtökur, sem
hann hafði fengið hér Maðurinn haíði ekkert af þessu sagt;
alt hafði þetta verið tilbúningur blaðsins — í því einu skyni
saman settur, að því er séð verður, að særa íslendinga. Og í
fyrra á danskt blað samtal við leikkonu, sem hingað hafði komið
og verið tekið hér vel. Eftir henni eru höfð jafn-yfirlætismikil
og enn óvirðulegri ummæli um fóllc hér. Hún tjáir sig ekki
hafa sagt nokkurt orð af þessum þvættingi.
Þegar dönsk blöð voru að níðast á B. J. með þessum
hætti, vöruðu menn sig ekki á þessari bardaga-aðferð, og létu
sér verða mikið um hana. Nú eru menn farnir að venjast henni.