Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 214
152
Fisldsýningin
12. deild.
34.—39. fl.: Hafrannsóknir og ýms verkfæri og
uppdrættir þar að lútandi o. 11.
13. deild.
40.—41. fl.: Vátrygging, liagfræði, ýms lög, sam-
göngur o. fl.
Um þessar 5 síðastlöldu deildir verð eg fáorður.
Til þess að hafa gagn af mörgu af því, sem þar var
sýnt, þurfti sérfræðslu, og sá eg sárt eftir, að hafa
ekki herra fiskifræðing Bjarna Sæmundsson þar, tii
að útlista ýmislegt fyrir mér, viðvíkjandi hafrann-
sóknum og lífi fiskanna. Þegar eg því einn og ófróð-
ur í þessum efnum, skoðaði ýmsa hluti, er eg eigi
skildi, varð eg leiður og óþreyjufullur, og fált festist
í minni.
14. deild.
42—45 flokkur: Fiskiafurðir Grænlands, íslands,
Færeyja og Vesturindiaeyja, veiðar-
færi, áhöld, líkön uppdrættir og
ýmisl. 11.
Lítið har á grænlenzku sýningunni, og eru
Grænlendingar sjáanlega langt á eftir öðrum í ílest-
um veiðiskap. Færeyingar sýndn í félagi laglega
og allfjölbreytla sýningu. Þó var ekkert sérstakt á
henni að græða. Islenzkar afurðir, áhöld o. 11. sýndu
þeir herrar P. I. Thorsteinsson & Co., H. P. Duus
og P. Bjarnason ísafirði; var þessari sýningu mjög
vel fyrirkomið, þó sérstaklega P. I. Thorsteinsson’s,
og eiga þessir herrar miklar þakkir skilið hjá íslend-
ingum fyrir það, hve vel þeir höfðu vandað lil sýn-
ingarinnar, enda l'engu þeir beztu viðurkenningu.