Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 209
Fiskisýningin
147
í valni og sjó í (5 ár öðru liverju og alt af haldið
rökum, eftir því sem sagt var, og héldu þau litnum
og vóru ófúin. »Cuprinol« er nú þegar mikið notað
við litun á netum, segldúk, færum og mjórri köðlum,
og sérstök tegund er notuð til að bera á tré, sem
hætt er við fúa, svo sem gluggakislur, girðingarslaura,
brúartré o. íl., og hetir reynst mjög vel, og betur
en alt, sem áður er þekt. Það er vandalítið að lita
úr þessu efni. Hver sem vill reyna það, sem eg vil
ráða mönnum til, getur panlað það frá verksmiðj-
unni Kymeia, Langebrogade 6, Köbenhavn C. —
Ódýrast er að fá efnið í heilum fötum, og verður
þá litunin lílið eill dýrari en barkalitun.
4. deild.
12. flokkur: Fiskur úr sjó og vötnum á ýmsu ald-
ursstigi.
13. flokkur: Fiskur i is og frystur, einnig saltaður,
hertur, reyktur og meðhöndlaður á
annan liált, t. d. í kássu (Fars).
14. flokkur: Niðursoðinn fiskur al' ýmsum tegund-
um.
Það er mjög eftirtektarvert og fi'óðlegt, að fylgja
vexti og viðgangi (iskanna, frá fyrsta aldursstigi til
fullkomins þroska, og sjá t. d. hversu þorskurinn
óx misjafnt eftir þeim skilyrðum, er hann lifði við,
einkum hitastiginu í sjónum. í liafinu austan og
norðan við ísland var liann eins árs að eins um
3 þuml.1) á lengd, mjór og visinn, en á sama aldri
sunnan við ísland 7 — cS þuml., feitur og gildur.
1) Hér er lengdavmál sett í þumlungum, þvi enn eiga
flestir hægra með að átta sig á gamla málinu.
ÍO’