Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 203
Fiskisýningin
141
því, hvað þeir voru afburðameiri — meiri sjóskip —
og svo útlitið, það bar eins og gull af eiri. Nútíð-
arbátar og skip, fáguð og prýdd, og útbúin með öll-
um hugsanlegum þægindum. Fyrritíma bátarnir voru
allir seymdir með hnoðsaum úr járni, en nú eir-
seymdir og reksaumur í böndum. Norska bátalag-
ið þótti mér yfirleitt fallegast, þó helzt til borðlágir.
Því miður var þar enginn íslenzkur bátur, en liefði
þar verið vel smíðaður bátur með norðlenzku lagi,
álít eg að hann liefði eigi staðið neitt á baki báta
þeirra er sýndir voru. Einn vélabátur var þar sýnd-
ur, smíðaður eingöngu úr stáli, var hann lipur og
léttur, og þykir mér líklegt, að bátar úr því efni séu
ekki dýrari, og að öllu leyti eins góðir og bátar úr
tré. Mikið var sýnt af skipum og bátum til llutn-
inga, og get eg ekki ímyndað mér meiri mun á nokk-
uru, en á gömlu llutningsskipunum með rásegli, og
binu nýsmíðaða skipi »Selandia« með »DieseImolor«,
sem allur heimurinn dáist að, og lítur út fyrir að
vera eitthvert mesta afreksverk Dana í seinni tíð; af
því var likan (Model) rúm stika á lengd. Tvær skrúf-
ur knýja skipið áfram sín á bvorri hlið á afturstafni
skipsins; vélarúm er mjög lílið, en farþegarúm og
ílutnings því meira.
Yms áliöld til að ferma og alTerma skip voru
mjög álilleg og handliæg, og geta án efa átt vel við
bjá okkur.
2. deild:
5. flokkur: Veiðarfæri, net, gildrur, línur, færi, keðj-
ur, kaðlar, segl, akkeri, tilbúin beita
o. fl.