Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 82
20
Fiskirannsóknir
fengið hreistur (stærstu blöðin 1 mm. í þvermál) um
allan bol og sporð, hinar smærstu að minsta kosti á
hnaklca, kvið og framanverðar síður; 3—4 mánaða.
4. 24 sílclir, veiddar í Faxaflóa 19. ág. 1904,
teknar af handahófi úr urmul af síld af sömu stærð;
lengd 5—7 cm., llestar 6 cm; hreistur farið að mynd-
ast alstaðar á baki, en ekki fyrir neðan síðulínu,
vorgotnar og því 4—5 mánaða.
5. 8 síldir, veiddar í Reykjavík 17. okt. 1897,
ásamt mergð af síld af sömu stærð; lengd 9,5—11 cm.;
hreistur 2—3 mm. í þvermál; vetrarlína í rönd á
sumum; vorgotnar og því á fyrsta ári (c. x/2 árs).
6. 2 síldir, veiddar í Reykjavík 1. júní 1895;
lengd 9 og 9,5 cm.; hreistrið er c. 2 mm. í þvermál;
ein vetrarlína skamt fyrir innan röndina; vöxtur þvi
byrjaður á ný1); vorgotnar og því veturgamlar (1
árs rúmlega).
7. 3 síldir frá Skagaströnd? sumarið 1910, lengd
9—11 cm.; 1 vetrarlína rétt við rönd; vorgotnar og
því veturgamlar (1 árs rúmlega).
8. 1 síld, veidd í Borgarnesi sumarið 1895;
lengd 9,5 cm.; vorgotin; 1 vetrarlína, og því vetur-
gömul (c. ll/2 árs), Þessa síld scndi Helgi sál. Jóns-
son, þá verzlunarstjóri, mér og sagði, að urmull væri
af þesskonar síld á vorin í Borgarfirði, og æti lax-
inn hana mikið (sbr. skýrslu mína í Andvara 1897
bls. 169).
9. 1 síld úr Veslmannaeyjahöfn, 12. april 1908;
lengd 10 cm.; vorgotin; veturgömul (1 árs).
1) Á norskri síld hefir það reynzt svo, að hreistrið hættir
að vaxa ár hvert í október, en byrjar aítur í april; hér mun
það verða svipað á síld, sem er við suður- og vesturströndina;
byrjar líklega nokkuð seinna.