Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 196
134
Bréf Brynjólfs biskups
Bréf Brynjólfs biskups Sveinssonar
til Pormóðar Torfasonar,
dagsett í Skálholti 11. Júlí 1663, um lát Ragnlieiðar
dóttur sinnar, um skýringar sira Hallgríms
Péturssonar á vísum í Ólafs sögu, og um
skinnbókina fornu af Sæmundareddu,
er biskup sendi konungi með Þor-
móði 1662 (Iíonungsbók).
Eptir bréfabók Brynjólfs biskups AM. 275. Eo). b). 52—54,
og afskript þar af í LandsdókaBafni 1084. 4to bls. 79—84, með
liendi meistara Guðmundar Þorlákssonar 1902—1903. í frum-
bókina vantar nú 10 blöð fyrir framan þetta bréf (bl. 42—51),
og upphaf þessa bréfs þar með. — Ragnheiður Brynjólfsdóttir
andaðist á útmánuðum 1663. — Um skýringar síra Haligríms á
kvæðum í Sæmundareddu, sjá bréf á bls. 56—60 liér framar. —
Af bréfi þessu, sem eingir útgefendur Sæmundareddu hafa þekt
cða notað, er auðséð, að Brynjólfi biskupi hefir verið fullljóst
gildi þessarar eddubókar, sem liann var að )áta af höndum, og
nú er talin dýrmætust allra handrita í öllum bókmentum Norður-
landa. Bók þessi virðist vera úr hinu forna bókasafni klausturs-
ins í Þykkvabæ í Yeri.
.............hann unni oss sællra tíða og sam-
funda, þegar lians náð sér það verða sínu heilaga
nafni dýrðarlegast, en oss gagnlegast, í Jesú nafni.
Amen. Því er nú ekki framar vor gunstugu yfirvöld
með þeim pósti um liennar reslitutionem1) að solli-
citera2), en samt og áður auðmjúklega þakkandi fyr-
ir þá náð, sem þar úlí liafa viljað auðsýna, og so
yður og öðrum gunstugum vinum, sem þar hafa
viljað til stoða og að hlynna, tilsegjandi mína skyld-
uga þjenustu yíirvöldum í öllu því, sem eg er um
kominn, og so yður og öðrum góðum vinum í því,
mér mögulegt væri.
Þar næst skrifar yðar velvild um vísurnar úr
Ólafs sögu, að þær nú aptur fá vilduð. En so hefur
fallið fyrir mér í vetur, að eg heíi ekki fær til verið
1) upprcisn. 2) ónáða.
i