Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 99
1911 og 1912. 37
en 1904. I5á voru merktir hátt á 5. hndr. fiskarvið
Austurland.
Af þessum fiskum voru 297 (40—llOcm. langir)
merktir í Loðmundarfirði 25. júlí. Af þeim veiddust
aftur 25, eða 8,4%, frá júlí 1904 til sept. 190(5, á
svæðinu milli Eyjafjarðar og Ingólfshöfða (1 við Gríms-
ey, 1 50 sjómílur N. af Langanesi, 1 í Reyðarfirði, 1
rak á Breiðamerkursandi; hinirj veiddust á svæðinu
milli Glettinganess og Barðsneshorns). Hötðu þessir
fiskar vaxið að meðaltali eitthvað um 10 cm. á ári.
194 fiskar (c. 50—60 cm. langir) voru merktir á
Héraðsílóa 28. júlí. At þeiin hafa að eins 4, eða c.
2,0°/o veiðzt aftur á tímabilinu frá sept. 1904 til ág.
1906, úti fyrir NA.-ströndinni (1 50 sjómílur A. af
Langanesi; hinir út af Vopnafiiði). Höfðu þessir fiskar
vaxið 12—18,5 cm., eða eilthvað um 10 cm. á ári.
Árið 1905 var merktur 391 fiskur (lengd 40—60
cm.) á Skagafirði 10.—18. ágúst. Þar af hal'a end-
urveiðzt 15, eða 3,9°/o á tímabilinu frá ágúst 1905
lil ágúst 1907, á svæðinu milli Eyjafjarðar og Garð-
skaga (2 við Siglunes, 4 á Skagafirði, 2 á Húnaflóa,
3 í Isafjarðardjúpi, 1 undan Skor og 1 við Garð-
skaga). Þessir fiskar höfðu vaxið frá 0,5—20 cm.,
eða hér um bil 8 cm. að meðaltali á ári.
Sama ár voru merktir 26 fiskar (40—50 cm.
langir) á Eyjafirði, 16. og 22. ágúst. Af þeim hafa
2 eða 7,7°/» veiðst aftur, á tímabilinu frá sept. til
október 1905, annar á Eyjafirði, hinn á Skagafirði.
Árið 1908 voru merktir 27 fiskar (c. 50 cm.langir)
á Skjálfanda 24. júlí. Af þeim hefir að eins 1, eða
3,7% fengizt aftur; hann veiddist á Skjálfanda
13 mánuðum eftir merkinguna, og hafði vaxið 13 cm.
á þeim tíma.
/