Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 217
Fiskisýningin
155
ugir, en sitja sig ekki úr færi að fá þær endurbætur,.
sem árlega eru gerðar, því allar tegundir gangvéla
eru á fleygiferð í áttina til endurbóta. Vélabátaút-
vegurinn yfirleilt liefir beðið mikið tjón við það, að
menn í fljótfærni hafa hlaupið eftir ýmsum skrum-
auglýsinguin um nýjar tegundir véla, sem svo bafa
reynst lítt nýtar, og hinsvegar er það líka mjög ó-
heppilegt, þegar í sömu veiðistöð eru máske 8—10
mismunandi vélategundir, sem gjöra allar aðgerðir
erfiðari, og oft ekki liægt að fá ýmsa vélaparta, sem
endalaust ganga af sér, því engar vélaverksmiðjur eða
kaupmenn fást til að liggja með á ýmsum stöðum
slíka vélaparta, nema um mikið sé að ræða, því það
er mjög þýðingarmikið fyrir útvegsmenn, að þurfa
ekki að bíða lengi eftir aðgerðum.
í sambandi við þetta, sem áður er sagt, vil eg
geta um eina nýung, er sýnd var á sýningunni, sem
getur liaft mikla þýðingu fyrir vélabátaútveginn.
I5að er ný aðferð til að gjöra við brotnar vélar eða
vélaparta, og yfirleitt alt úr steyptu járni og slegnu.
Þetta er gert á þann liátt, að hinir brotnu partar
eru bræddir saman með þar til gerðu áhaldi »Dansk
Autogén Sveiseapparat« og var það sagt jafntraust
og nýtt. Sýnt var margt af hlutum þannig viðgerð-
um, svo sem tannahjólum, »Motorcylinder«, spil-
sveifar, og margt lleira. þetta sýndi »firma« er ltall-
ar sig: Dansk Autogén Sveiseanstalt. Æskilegt væri
að þeir smiðir, er fást við aðgerðir á bátavélum,
vildu kynna sér þetta nánar, og geta þeir fengið allar
upplýsingar bjá Tb. Lang, Kalvebod Brygge 14,.
Ivöbenbavn B.